RE/MAX og Sigríður Guðnadóttir löggiltur fasteignasali (s.663 3219 eða sigga@remax.is) kynna: Einstaklega fallegt 5 herbergja einbýli á einni hæð með tvöföldum bílskúr í lokuðum botlanga. Geymsluskúr á lóð (14 fm sem er ekki inn í fm tölu eignar)
Hiti í bílaplani.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT SENT STRAX!!
SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ HÚSIÐ Í 3D!!! Skv. FMR er húsið skráð 164,8 fm auk bílskúrs 46 fm eða samtals 210,8 fm
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Baðherbergi inn af forstofu, flísalagt með fallegri innréttingu og sturtu.
þvotthús er innaf forstofu með flísum á gólfi og innréttingu, innangengt inn í
geymslu og tvöfaldan flísalagðan bílskúr úr þvottahúsi, en einnig er sér inngangur inn í bílskúr.
Miðrými með flísum á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými: Eldhús með fallegri hvítri innréttingu,flísar á gólfi.
Stofa og borstofa er rúmgóð með parket á gólfi, útgengi út á verönd og garð úr borðstofu.
Svefnherbergisgangur með parket á gólfi.
Þrjú barnaherbergi með parket á gólfi og fataskápum.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu og tveimur vöskum, upphengdu wc, horn- baðkari og handklæðaofni.
Einstaklega falleg eign í góðu hverfi í firðinum fagra.
Stutt í alla þjónustu og einstaklega gott fyrir barnafólk: Skóli, leikskóli, íþróttamiðstöð, sundlaug og verslanir.Sjón er sögu ríkari.Nánari upplýsingar gefur Sigríður lgf. í síma 663 3219 eða sigga@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.