Fasteignaleitin
Skráð 27. apríl 2026

Selvogsgrunn 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
83.7 m2
3 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.900.000 kr.
Fermetraverð
799.283 kr./m2
Fasteignamat
65.400.000 kr.
Brunabótamat
40.100.000 kr.
Mynd af Kristján Gíslason
Kristján Gíslason
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2017243
Landnúmer
104119
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Endurnýjaðar að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Lóð
20,02
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gimli fasteignasala kynnir: Fallega og bjarta 2ja-3ja herbergja íbúð, með stórum suður-svölum, í litlu fjölbýli við Selvogsgrunn 3, 104 Reykjavík. Íbúðin er 83,7 fm að meðtalinni 6 fm sér geymslu í kjallara. Íbúðin er á 1.hæð í húsi sem er kjallari og tvær hæðir, með samtals 6 íbúðum. Í dag er eitt svefnherbergi í íbúðinni og annað aukaherbergi, sem er gluggalaust. Einfalt mál er að færa eldhúsið inn í stofu og bæta þannig við öðru svefnherbergi.

Eignin Selvogsgrunn 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-7243, birt stærð 83.7 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-02, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Kristján Gíslason  í síma 691-4252, eða kristjan@gimli.is

Smellið hér til að sjá myndband af eigninni.

NÁNARI LÝSING:
Húsið er steinsteypt, kjallari og tvær hæðir. Tvær íbúðir eru á hvorri hæð og tvær í kjallara. Í miðju er húsinu skipt með steyptum vegg sem skiptir húsinu í tvo hluta, sem eru spegilmynd hvors annars, þannig að þrjár íbúðir eru í hvorum enda hússins.
Gengið er upp tröppur á austurhlið hússins og þar er sameiginlegur inngangur fyrir íbúðina og íbúðina á 2.hæð. Komið er inná flísalagt hol þar sem er frístandandi fataskápur og stigar niður í kjallara og upp á efri hæðina. Þegar gengið er inn í íbúðina er komið inná gang með eikarparketi en parketið er á öllum rýmum íbúðarinnar nema baðherbergi.
Til hægri við enda gangsins, fjærst götu, er svefnherbergið, með innbyggðum fataskáp. Á ganginum við enda borðstofunnar er búið að útbúa lítið svefnherbergi. Baðherbergið hefur verið endurnýjað og er með upphengdu salerni, sturtu, opnanlegum glugga, handklæðaofni, speglaskáp fyrir ofan vask og innréttingu undir vaski. Eldhúsið er með L-laga hvítri innréttingu, keramik helluborði og ofninn er í vinnuhæð. Lítill borðkrókur er í eldhúsinu og opnanlegur gluggi. Stofa og borðstofa mynda stórt og bjart rými með gluggum á allri suðurhliðinni. Úr stofunni er gengið út á stórar suður-svalir (8,1 fm). Tiltölulega auðvelt er að færa eldhúsið inn í stofuna og breyta eldhúsinu í svefnherbergi en þessi breyting hefur verið gerð í a.m.k. einni annari íbúð í húsinu.
Sér geymsla er í kjallara og er hún 6 fm. Í kjallara er einnig sameiginlegt þvottahús fyrir íbúðirnar þrjár í stigaganginu. Þar er sér tengi fyrir þvottavélina, opnanlegur gluggi og nýlega lakkað gólf. 

Að sögn eiganda hefur þak og frárennslislagnir verið endurnýjað.

Um er að ræða snyrtilega og bjarta eign sem bíður uppá mikla möguleika. Göngufæri í Laugardalslaug og útivistarsvæðið í Laugardalnum.

Nánari upplýsingar veitir: Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, tölvupóstur kristjan@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/07/202351.000.000 kr.54.900.000 kr.83.7 m2655.913 kr.
09/05/201834.350.000 kr.37.500.000 kr.83.7 m2448.028 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipalón 20
Bílastæði
Skoða eignina Skipalón 20
Skipalón 20
220 Hafnarfjörður
127.5 m2
Fjölbýlishús
423
861 þ.kr./m2
109.800.000 kr.
Skoða eignina Grænamýri 8
Bílskúr
Skoða eignina Grænamýri 8
Grænamýri 8
170 Seltjarnarnes
136.5 m2
Fjölbýlishús
312
842 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Garðabraut 1 - 101
Garðabraut 1 - 101
300 Akranes
67.2 m2
Fjölbýlishús
211
804 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Skoða eignina Hrafnaborg 3
Skoða eignina Hrafnaborg 3
Hrafnaborg 3
190 Vogar
151.9 m2
Fjölbýlishús
423
585 þ.kr./m2
88.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin