Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna einstaklega vel hannað einbýlishús á frábærum útsýnisstað til sölu.
Álmakór 19, sem er staðsteypt einbýlishús á tveimur hæðum stendur innst í botnlanga með ósnortna náttúru umhverfis húsið og óhindrað útsýni yfir borgina, til sjávar og fjalla.Húsið var byggt árið 2014 og er skráð 312,7 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, auk ca.30 fm óskráðs rýmis sem nýtast vel innan hússins.Hálf opið bílskýli, 78 fm., með lýsingu og hleðslustöðvum er í beinu framhaldi af húsinu sjálfu en telst ekki inni í birtri stærð. Okkar bestu hönnuðir komu að hönnun og byggingu hússins þar sem smáatriði og útsjónarsemi njóta sín hvort sem er í lýsingu eða efnisvali. Húsið er hannað af
Sigurði Hallgrímssyni , innanhússhönnun var í höndum Guðbjargar Magnúsdóttur, lýsingu hannaði Helgi í
Lúmex og garðinn, verandir og ytri umhverfi hannaði Finnur Kristinsson hjá
Landslag.
Nánari lýsing; Neðri hæð; Stór og opin forstofa og hol tekur vel á móti fólki með sérsmíðuðum, innfelldum, skápum og góðri lýsingu. Inn af forstofunni er fataherbergi/geymsla fyrir yfirhafnir og skó með miklu skápaplássi.
Á neðri hæðinni eru tvö stór herbergi;
1. Stórt og bjart herbergi með gólfsíðum gluggum og hurð út á vesturverönd er næst forstofunni en inn af því er hluti af óskráðu rými, ca 12 fm. sem getur nýst með ýmsum hætti en er í dag notað sem svefnaðstaða.
Glæsilegt baðherbergi er á hægri hönd, það er flísalagt í hólf og gólf með stórum "walk-in" sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu með góðum hirslum.
2. Stórt og opið herbergi með eldhúsinnréttingu, fataskápum og tengi við bakdyrainngang býður upp á möguleiki er að gera sjálfstæða studio íbúð á neðri hæðinni eingöngu með því að loka/læsa rennihurð frá forstofu sem er þegar til staðar en þar væri ca 30 fm. herbergi/stofa með innréttingu, sér inngangi og baðherbergi. Gengið er út frá þessu herbergi út á skjólgóða vesturverönd.
Bakdyra forstofa er með góðum fataskápum og sér inngangi frá bílastæði.
Glæsilegur, parketlagður stigi með lýsingu er milli hæðanna - en stór gluggi á móti inngangi snýr upp í opið og grænt svæði fyrir ofan húsið, tryggir birtuflæði inn í báðar hæðirnar.
Efri hæðin er stórglæsileg og vel skipulögð með stórum gluggum i allan hringinn. Stórar og opnar stofur með gólfsíðum gluggum mót n-vestri, þaðan er frábært útsýni yfir borgina og víðar, rennihurð út á svalir sem liggja meðfram allri norður hlið hússins.
Glæsilegt eldhús er með mikilli innréttingu meðfram heilum vegg, stórri eyju með náttúru-steinplötu sem er bæði fjölskylduvæn og býður upp á góða aðstöðu fyrir veisluhöld. Þar eru vönduð eldhústæki frá Miele, öflugur háfur með útsogi, innfelld lýsing, tvöfaldur ísskápur og vandaður vínkælir frá Baco prýða eldhúsið. Meðfram eldhúsinu bæði til suðurs og vesturs er harðviðarverönd, rúmir 100 fm., að hluta til undir skyggni sem tryggir að hægt er njóta útiveru í góðu skjóli nánast allan ársing hring. Veröndin virkar sem framlenging af eldhúsinu og stofum.
Rúmgott fjölskyldurými með rúmgóðri sjónvarpsstofu er aðeins afstúkað frá opnu alrými stofu og eldhúss.
Á efri hæðinni eru 3 rúmgóð herbergi, tvö stór unglingaherbergi (14,5 fm.) með góðum fataskápum og stórum gluggum.
Glæsilegt hjónaherbergi með vel innréttuðu fataherbergi með viðarinnréttingum og hurð út á veröndina með góðu aðgengi að heita pottinum.
Rúmgott baðherbergi með stórum "walk-in" sturtuklefa, vönduðum, innbyggðum blöndunartækjum, innréttingu, upphengdu salerni og krómlituðum handklæðaofni er bæði glæsilegt og notendavænt. Frá baðherberginu er gengið út á verönd með heitum potti og með skjólveggjum með niðurfelldri lýsingu og villtum holtagróðri í ósnortinni náttúru fyrir ofan húsið.
Á hæðinni er einnig flísalagt þvottahús með góðum innréttingum, vélar eru í vinnuhæð og opnanlegur gluggi ásamt loftræstingu.
Húsið sjálft er afar vandað og vel úthugsað fjölskylduhús, herbergin eru stór, innréttingar,skápar og innihurðir sérhannað og smíðað af Hegg innréttingasmiðju fyrir hvert rými. Vandað olíuborið eikarparket er á gólfum þar sem ekki eru flísar og gólfhiti í öllum rýmum.
Stór geymsla (13,2 fm. auk óskráðs rýmis inn af) nýtist afar vel og eru aðgengilegar frá bílageymslunni. Bílageymslan, 78 fm., er yfirbyggð og lokuð af á 2 vegu af húsinu sjálfu, þar er innfelld lýsing og nægt pláss fyrir4 bíla, auk þess sem fleiri bílastæði eru upp við húsið að norðoanverðu.
Garðurinn umhverfis húsið er með steinhleðlsum og hagagróðri semflæðir áfram í óbyggt svæði sem liggur fyrir ofan /aftan húsið.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.