Fasteignaleitin
Skráð 29. sept. 2025

Skipholt 58

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
171.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
148.900.000 kr.
Fermetraverð
869.743 kr./m2
Fasteignamat
108.850.000 kr.
Brunabótamat
81.700.000 kr.
BH
Björn Hlynur Haraldsson
Tengiliður seljanda
Eignalisti
Byggt 1967
Jarðhæð
Svalir
Hleðslustöð
Fasteignanúmer
F2012515
Húsgerð
Hæð
Númer íbúðar
58
Svalir

Við kynnum bjarta, vel skipulagða og mikið endurnýjaða efri sérhæð í góðu tvíbýlishúsi, auk stúdíóíbúðar í bílskúr.

Lýsing eignar:

 

Forstofa: Á 1. hæð, flísalögð og með fatahengi. Gengið er um fallegan, bjartan og breiðan flísalagðan stiga upp á efri hæð. (Stigahús er ekki inni í fermetratölu eignarinnar).
Stigapallur: Flísalagður og rennihurð þaðan í hol.
Hol: Flísalagt og með fataherbergi innaf með mjög rúmgóðum fataskápum.
Eldhús og borðstofa: Opið og bjart rými, flísalagt eldhús með vönduðum gráum Alno innréttingum, granít á borðum og nýjum eldhústækjum. Rýmið tengist beint borðstofu og skapar góða heild.
Stofa: Ný teppalögð og björt með útgengi á rúmgóðar og skjólsælar suðursvalir. Ný stór rennihurð á svalir og sterkt AW Sedna Varuna teppi á gólfum úr endurunnum fiskinetum frá versluninni Parket og gólf.
Herbergi: Innaf stofu, flísalagt. Nýtt sem sjónvarpsherbergi í dag.
Svefngangur: Parketlagður og breiður.
Þvottaherbergi: Með glugga, flísalagt í gólf og með góðum innréttingum, þvottavél í vinnuhæð. Mikið og gott geymslu pláss í skúffum á skápum.
Baðherbergi: Með glugga, rúmgott og nýlega endurnýjað. Innréttingar, vegghengt wc og ný walk-in sturta með glerþili. Gólf flotað og lakkað.
Barnaherbergi I: Parketlagt og rúmgott með ALNO fataskápum með rennihurðum.
Barnaherbergi II: Parketlagt og rúmgott með fataskápum án hurða.
Hjónaherbergi: Rúmgott, parketlagt og með rúmgóðum ALNO fataskápum með rennihurðum.

 

Stúdíóíbúð í bílskúr:

Í bílskúrnum er fullbúið íbúðarrými með rafmagni, hita, vatni og góðri lofthæð. Eldhúskrókur. Baðherbergi með góðri sturtu. Gluggar í tvær áttir tryggja birtu. Rýmið hentar vel sem stúdíóíbúð, heimaskrifstofa eða mögulegt útleigurými og eykur nýtingu eignarinnar verulega.

 

Húsið að utan:

Ytra byrði hússins er í góðu ástandi. Nýlega gert upp, steypt og málað.  Nýlegar þakrennur og niðurfallsrör og þak í góðu ásigkomulagi. 

 

Lóðin:

Stór, fullfrágengin og ræktuð með tyrfðri baklóð og gróðri. Upphituð innkeyrsla með hleðslustöð. Tröppur upp að húsi nýlega múraðar.

 

Staðsetning:

Eignin er miðsvæðis í rólegu hverfi. Stutt er í skóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Auk þess er íbúðin í göngufæri við Laugardalinn, Klambratún og Kringluna. Í hverfinu sjálfu er mikil uppbygging sem gerir svæðið sífellt eftirsóknarverðara.

Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er efri sérhæðin skráð 140,5 fm auk stigahúss sem er í séreign og 17,4 fm, samtals um 158,0 fm, auk stúdíóíbúðar í bílskúr, skráðrar 30,7 fm.

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut - sýni samdægurs 45A
Opið hús:25. ágúst kl 16:00-16:30
Hjallabraut - sýni samdægurs 45A
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47 - sýni samdægurs
Opið hús:25. ágúst kl 16:00-16:30
Hjallabraut 47 - sýni samdægurs
220 Hafnarfjörður
157.5 m2
Raðhús
423
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Nýlendugata 22
3D Sýn
Opið hús:25. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Nýlendugata 22
Nýlendugata 22
101 Reykjavík
77.2 m2
Fjölbýlishús
312
995 þ.kr./m2
76.800.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 18
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Smyrilshlíð 18
Smyrilshlíð 18
102 Reykjavík
62.5 m2
Fjölbýlishús
211
1054 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin