Trausti Fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu einstaklega bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með suðurverönd og sérmerktu endastæði í bílageymslu í eftirsóttu húsi við Laugarnes 89 Reykjavík. Birt stærð eignar er 110,1 fm samkvæmt HMS, þar af er 8,9 fm geymsla í kjallara. Um er að ræða virkilega fallega og vel skipulagða eign sem vert er að skoða. Sér inngangur er í íbúðina.Nánari lýsing:Komið er inn í rúmgóða
forstofu með góðum fataskáp og flísum á gólfi. Frá
forstofu er komið inn í alrými sem tengir önnur rými íbúðarinnar.
Tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, stofu og eldhús.Stofan er stór og björt með útgengi út á
sólríka suður verönd og þar út á vel hirta
stóra lóð með leiktækjum.
Eldhús rúmgott með fallegum innréttingum, góðu skápaplássi og borðkrók.
Eldhúsið er að hluta til opið að stofu.
Hjónaherbergi er rúmgott með mjög góðu skápaplássi.
Aukaherbergi er án skápa.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, falleg eikarinnrétting, upphengt salerni og baðkar. Gott
þvottahús er inn af
eldhúsi með flísalögðu gólfi.
Geymsla er í sameign ásamt
sér endastæði í bílageymslu með tengi fyrir hleðslustöð.
Næg bílastæði eru svo við framhlið hússins. Einnig er í kjallara sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla ásamt rúmgóðri
sameiginlegri geymslu sem tekur vel við.
Sameignin er mjög vel um gengin og allt viðhald virðist vera til fyrirmyndar. Fjarstýringar á öllum hurðum sameignar. Húsið er álklætt að utan sem dregur úr viðhaldsþörf.
Hér er um að ræða virkilega fallega og vel skipulagða eign í hjarta Laugardalsins sem vert er að skoða. Stutt í allar áttir sbr.miðbæinn, sjávarsíðuna, Laugardalslaugina , útivist og hvers kyns verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.