Fasteignaleitin
Opið hús:08. júní kl 17:30-18:00
Skráð 2. júní 2026

Funafold 18

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
172.6 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
134.900.000 kr.
Fermetraverð
781.576 kr./m2
Fasteignamat
120.050.000 kr.
Brunabótamat
92.300.000 kr.
Mynd af Guðný Þorsteinsdóttir
Guðný Þorsteinsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2042212
Landnúmer
110147
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Yfirfarið að hluta
Þak
Yfirfarið að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Norður
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Gólfefni eru upprunaleg eða frá árinu 1988, parketið þarf að pússa upp eða skipta út - 2 þakgluggar eru á efri hæð sem (að sögn fyrri eiganda) láku og voru því límdir fastir, hafa ekki lekið síðan, þarf að skipta út. Vifta er í lofti á 2. hæð, þar sem baðherbergi og þvottahús er á þeirri hæð þarf að gæta þess að nota hana. Móða er í nokkrum glerjum í hægri glugga í stofu á 1. hæð. Brotið er upp úr helluborði.
NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3VÍDD (ekki er þörf á sérstöku forriti)

RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu:
 7 herbergja parhúsi á 2 hæðum ásamt bílskúr á vinsælum og eftirsóttum stað í Grafarvogi. Samkvæmt fasteignayfirliti ríkisins er húsið samtals 172,6fm, þar af er 19,8fm bílskúr.

Eignin samanstendur af: Forstofu, eldhúsi, stofu ásamt borðstofu, 5 svefnherbergjum, gestasalerni, baðherbergi, holi, þvottahúsi, bílskúr ásamt garði með verönd.

Nánari lýsing:
1. hæð:

Forstofa: Er með þreföldum fataskápum. Flísar á gólfi.
Gestasalerni: Er lítið og snoturt. Flísar á gólfi.
Eldhús: Er bjart með góðu skúffu- og skápaplássi, bakaraofni í vinnuhæð, helluborði með viftu fyrir ofan, tengi fyrir uppþvottavél ásamt borðkróki. Viðarparket á gólfi.
Stofan/ borðstofa: Er í björtu og rúmgóð rými með útgangi út í garð. Viðarparket á gólfi.
Garður/verönd: Gengið er úr stofu í opin sólskála með stórum viðarpalli, garður er fallega gróinn og snýr til suðurs.
Stigi: Gengið er upp steyptan parketlagðann stiga í aðra hæð.
2. hæð: Úr herbergjum er fallegt útsýni.
Hol: Alrými á annarri hæð er með aukinni lofthæð ásamt 2 þakgluggum. Viðarparket á gólfi.
Herbergin I: Er 12,9fm að stærð með fataskápum (hurð vantar á 2 skápa), útgangur er út á norður svalir. Viðarparket á gólfi.
Herbergin II: Er 8,9fm að stærð. Plastparket á góli.
Herbergin III: Er 7,4fm að stærð. Viðarparket á góli.
Herbergin IIII: Er 9,1fm að stærð. Plastparket á gólfi.
Herbergi IIIII: Er 5fm að stærð notað sem skrifstofa í dag. Dúkur á gólfi. 
Geymsluloft: Er fyrir ofan skrifstofu herbergið.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, sturtu með rennihurð, vaskur með skúffum undir ásamt skápum, gluggi er með opnanlegu fagi.
Þvottahús: Er með skolvaski, innréttingu ásamt glugga með opnanlegu fagi. Flísar á gólfi.
Bílskúr: Er 19,8fm að stærð með rafmagni, hita og vatni. Hleðslustöð fylgir.
Lóðin í kringum húsið er falleg og gróin með hellum, trjám og blómum. Bílaplan er hellulagt með hita í ásamt með bílastæði fyrir 2 bíla.

Viðhald:
2024: Húsið og þakskegg málað að utan
2023: Þakrennur endurnýjaðar
2022: Skipt um glugga á 2. hæð á suðurhlið hússins ásamt stóra glugganum í stofu ásamt svalahurð 
2017: Þak yfirfarið og málað
2016: Innrétting í þvottahúsi endurnýjuð
2011: Innrétting á baðherbergi á 2. hæð endurnýjuð
2009: Innréttingum í eldhúsi skipt út að hluta

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/01/201855.250.000 kr.67.200.000 kr.172.6 m2389.339 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (46)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 32
Opið hús:04. júní kl 17:00-17:30
Orkureitur D2 603 ný .jpg
Urriðaholtsstræti 32
210 Garðabær
140.3 m2
Fjölbýlishús
423
840 þ.kr./m2
117.900.000 kr.
Skoða eignina Hagasel 2
Hagasel 2.jpg
Skoða eignina Hagasel 2
Hagasel 2
109 Reykjavík
200 m2
Raðhús
625
600 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Jörundarholt 21
Bílskúr
Opið hús:08. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Jörundarholt 21
Jörundarholt 21
300 Akranes
214.8 m2
Einbýlishús
625
558 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0420
Opið hús:07. júní kl 13:00-13:30
laugaborg 420 .jpg
Skoða eignina Laugaborg 0420
Laugaborg 0420
105 Reykjavík
112.1 m2
Fjölbýlishús
312
1007 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin