Fasteignaleitin
Skráð 7. sept. 2026

Háteigur 13

EinbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
205 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
584.878 kr./m2
Fasteignamat
104.500.000 kr.
Brunabótamat
107.050.000 kr.
Mynd af Andri Freyr Halldórsson
Andri Freyr Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1979
Garður
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2088292
Landnúmer
127219
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Garður
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Andri Freyr lgfs. & Atli Karl ásamt LIND Fasteignasala, kynna til sölu:
Smekklegt og vel hannað fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Háteig 13, í Keflavík.
Eignin er björt, rúmgóð og praktísk í skipulagi, með góðum tengingum milli rýma – tilvalið heimili fyrir nútíma fjölskyldur.
Stór endalóð í rólegum botnlanga með stóru grænu svæði þar í kring.

Skráð stærð eignar skv. FMR er 205 fm. Eignin skiptist í íbúð 154,4 fm og 50,6 fm bílskúr.
*Fasteignamat skv. fmr fyrir árið 2027 er 104.750.000 kr.* 

*Einbýli á einni hæð.
*Stór garður.
*Frábær staðsetning.
*Aukin lofthæð í stofu/borðstofu.

Nánari upplýsingar veita:
Atli Karl Pálmason - Lgf. / 6624252 / atli@fastlind.is


Eignin skiptist í:
Forstofu, fjögur svefnherbergi, eldhús, stofu & borðstofu -sjónvarpshol, gesta salerni, baðherbergi, þvottahús með skolvask og rúmgóðum 50,6 fm bílskúr.


Nánari lýsing eignar:
Anddyri: með flísalögðu gólfi og fatahengi.
Stofa & borðstofa: er rúmgóð og björt með aukinni lofthæð. Fallegt lakkað sjónflot er á gólfi sem gefur stofunni nútímalegt yfirbragð. Inn af stofu/borðstofu er innskot sem tilvalið væri sem sjónvarpshol.
-Útgengt er úr stofunni út í rúmgóðan garð, sem býður upp á mikla möguleika  – tilvalið fyrir notalegar stundir utandyra.
Eldhús: er bjart og opið með fallegri viðarinnréttingu, eyju, borðkrók sem gefur rýminu aukið notagildi. Góð tenging er við stofu/borðstofu sem myndar skemmtilega heild. 
-Innbyggður bakaraofn & stæði fyrir ísskáp og uppþvottarvél. Bakaraofn er í vinnuhæð. Eyja með helluborði og smekklegum gufugleypi. Gólfið er flísalagt.
Hjónaherbergi 1: er rúmgott með fallegt sjónflot á gólfi
Svefnherbergi 2: er rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: með parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: með parket á gólfi.
Baðherbergi: er smekklegt með flísum á gólfi og veggjum. Þar má finna bæði baðkar og sturtu, salerni og snyrtilega innréttingu ásamt speglaskáp.
Gesta salerni: er snyrtilegt, flísalagðir veggir með flísum á gólfi.
Þvottahús: með flísalögðu gólfi ásamt skolvask.
Geymsluloft er aðgengilegt úr gesta salerni.
Lóð: Stór & snyrtilegur garður. Falleg hellulögð aðkoma.
Bílskúr: 50,6 fm rúmgóður bílskúr með lökkuðu gólfi.

Háteigur 13 er vel staðsett eign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, eins og t.d. skóla, leikskóla, matvörubúðir, sund, líkamsrækt.

Nánari upplýsingar veita:
Atli Karl Pálmason - Lgf. / 6624252 / atli@fastlind.is


Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og SÝN. 

Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/06/202260.500.000 kr.33.750.000 kr.205 m2164.634 kr.Nei
29/11/202160.400.000 kr.71.500.000 kr.205 m2348.780 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1979
50.6 m2
Fasteignanúmer
2088292
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
18.450.000 kr.

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurvellir 14
Skoða eignina Suðurvellir 14
Suðurvellir 14
230 Reykjanesbær
194,8 m2
Einbýlishús
5
564 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Háseyla 27
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Háseyla 27
Háseyla 27
260 Reykjanesbær
208,7 m2
Einbýlishús
624
455 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Langholt 13
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Langholt 13
Langholt 13
230 Reykjanesbær
193,6 m2
Einbýlishús
614
567 þ.kr./m2
109.700.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 8
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 8
Fossvogsvegur 8
108 Reykjavík
210,8 m2
Raðhús
524
1139 þ.kr./m2
240.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin