Fasteignaleitin
Skráð 27. apríl 2026

Refsholt 29

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
55.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
29.900.000 kr.
Fermetraverð
538.739 kr./m2
Fasteignamat
38.400.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2333549
Landnúmer
204457
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Viðarpallur
Lóð
100
Upphitun
Rafmagn / Hitakútur
Inngangur
Tveir inngangar
Kvöð / kvaðir
Komi til sölu á eignum leigutaka, á leigusali forkaupsrétt að þeim, sjá lóðarleigusamning.
Betri Stofan Fasteignasala kynnir fallegt 55,5fm, 4ja herbergja sumarhús með stórri viðarverönd á fallegri, vel staðsettri útsýnislóð í Hálsaskógi í Skorradalshrepp. Húsið er byggt úr timbri og stendur á steinsteyptum grunni. Lóðin er á svæði sem nefnist Refsholt og stendur húsið á lóð nr. 29. Sumarhúsið er vel skipulagt og er með svefnpláss fyrir allt að 7-8 manns í 3 svefnherbergjum. Eldhús, borðstofa og stofa eru samliggjandi í opnu, björtu og fallegu alrými með stórum fallegum gluggum með glæsilegu útsýni að Skarðsheiði og inn Skorradalinn, baðherbergi með sturtuklefa og forstofa með fataskáp. Stór viðapallur á vestur- og suðurhlið bústaðar. Gott aðgengi er að húsinu og rúmgóð stæði fyrir framan hús og á lóðinni. Myndavél og lokað rafmagnshlið er við innkomu í sumarhúsahverfið. Sumarhúsinu fylgir einnig hlutdeild í opnum svæðum og akvegum innan hverfisins.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Svæðið er þekkt fyrir fegurð, veðursæld og Skorradalsvatn skammt undan. Útsýni að Skarðsheiði og inn Skorradalinn. Sumarhús í aðeins klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginni. Svæðið er um 15 ára bústaðabyggð um 30 hús þegar komin en byggðin fer stækkandi. Í Hálsaskógi verða þó ekki fleiri en 60 lóðir. Bústaðurinn er á afar friðsælum stað við götu sem heitir Refsholt 29 og er ofarlega í byggðinni.

Stærð lóðar er 3,694fm og er um leigulóð að ræða. Lóðin er leigð á erfðafestu til 30 ára frá dagsetningu lóðarleigusamnings dagsettur 7.10.22. Lóðarleigusamningur framlengist sjálfkrafa um eitt ár í senn, verði honum ekki sagt upp með minnst 6 mánaða fyrirvara. Um áframhaldandi leigu, gilda ákvæði 11. gr. laga nr. 75/2008, um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús. Leigutaki skuldbindur sig til að vera félagi í félagi allra frístundahúsaeigenda á svæðinu og fara að samþykktum þess í einu og öllu. Félagið kemur fram sem almennur málssvari leigutaka á svæðinu gagnvart leigusala.

Nánari Lýsing:
Forstofa / Herbergjagangur: Komið inn í forstofu með fataskáp. Forstofa tengist herbergjagangi.
Baðherbergi: Rúmgott með sturtuklefa, salerni, veggföstum vask, spegill og opnar hillur fyrir ofan vask. 
Svefnherbergi I: Innaf forstofu með svefnlofti.
Svefnherbergi II: Innaf gangi með fataskáp.
Svefnherbergi III: Innaf gangi með koju.
Alrými: Rúmgott, bjart og fallegt alrými með samliggjandi eldhúsi og stofu. Fallegir stórir gluggar í 3 áttir.
Eldhús: Ljós innrétting með efri og neðri skápum, eldavél, ísskápur og örbylgjuofn. Eldhús opið við stofu.
Stofa: Opin við eldhús. Rúmgóð stofa með borðstofu og setustofu. Glæsilegt útsýni út um stóra og fallega stofuglugga. Útgengt út á viðarpall til suður úr stofu.

Pallur: Stór viðarpallur á vestur- og suðurhlið sumarhúss.
Geymsla: Á palli við inngang. Hitakútur staðsettur.
Aðkoma: Gott aðgengi er að húsinu og rúmgóð stæði fyrir framan hús.

Einkar sjarmerandi og kósý sumarhús á afar fallegum og vinsælum stað í um klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginni.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þverásbyggð 27
Þverásbyggð 27
311 Borgarnes
103.4 m2
Sumarhús
414
479 þ.kr./m2
49.500.000 kr.
Skoða eignina Þverásbyggð 28
Þverásbyggð 28
311 Borgarnes
62.4 m2
Sumarhús
312
319 þ.kr./m2
19.900.000 kr.
Skoða eignina Koðrabúðir 14
Skoða eignina Koðrabúðir 14
Koðrabúðir 14
806 Selfoss
94.4 m2
Sumarhús
413
688 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturbakki 5 með góðu millilofti
Vesturbakki 5 með góðu millilofti
815 Þorlákshöfn
98.1 m2
Atvinnuhúsn.
1
318 þ.kr./m2
31.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin