Fasteignaleitin
Skráð 21. apríl 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Benijofar

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
137 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
59.200.000 kr.
Fermetraverð
432.117 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
900270124
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góðar svalir og þaksvalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* – *EINKASUNDLAUG*

Falleg, rúmgóð og vel hönnuð einbýlishús  með lokuðum garði og einkasundlaug í Benijofar, ekta spænskum bæ, um 45 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, góð stofa, borðstofa og rúmgott eldhús. Möguleiki á kjallara sem hægt er að nýta sem tómstundarrými, sjónvarpsherbergi og/eða gestaaðstöðu. Þvottahús og geymsla. Verönd  út frá stofu og einkasundlaug. Svalir út frá svefnherbergi á efri hæð. Stórar þaksvalir með tengi fyrir heitum potti.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is

Nánari lýsing:

Aðalhæð: Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými . Svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið. Þvottahús/geymsla.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi. Útgengi út á svalir frá öðru herberginu.
Möguleiki á kjallara.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 
Rafmagnstæki í eldhúsi fylgja og auk þess þvottavél.
Gólfhiti í baðherbergjum.
Rafmagnsgardínur.
Stæði fyrir bíl í lokuðum garði.

Garðurinn er hellulagður að mestu.. Einkasundlaug, sem tengist vel góðri verönd út frá stofu. Þar er gott pláss  t.d. til að borða úti eða njóta sólarinnar við sundlaugarbakkann.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15-20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Benijofar er skemmtilegur ekta spænskur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi hefðbundnu spænsku bæjarlífi, Fiestum og götumarkaði, verslunum og veitingastöðum. Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Ca. 10 mín. akstur á tvo góða golfvelli, La Finca og La Marquesa, og ótal fleiri góðir golfvellir eru í innan við 20 mín akstursleið frá Benijofar. Aðeins 8 km. frá fallegu ströndunum á Costa Blanca og ekki nema 2-3 mín akstur eða góður göngutúr til Ciudad Quesada og Dona Pepa, sem eru vinsælir og líflegir bæir sem iða af mannlífi allt árið.
Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.


Verð miðað við gengi 1Evra=150 ISK:
frá 395.000 evrum  (ISK 59.200.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin, samtals ca. 13%.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.


Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, sér garður, einkasundlaug, air con, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Benijofar
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR San Pedro del Pinatar
SPÁNAREIGNIR San Pedro del Pinatar
Spánn - Costa Blanca
163 m2
Einbýlishús
433
363 þ.kr./m2
59.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Spánn - Costa Blanca
122 m2
Einbýlishús
423
478 þ.kr./m2
58.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - San Fulgencio
SPÁNAREIGNIR - San Fulgencio
Spánn - Costa Blanca
101 m2
Einbýlishús
423
607 þ.kr./m2
61.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Spánn - Costa Blanca
141 m2
Parhús
423
414 þ.kr./m2
58.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache