Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Glæsileg, mikið endurnýjuð íbúð á 2.hæð (aðeins gengið upp eina hæð) í Laugardalnum með auka íbúð í sérstæðum bílskúr á lóðinni. Gengið er inn í sameignina að baka til í Dalbraut 3 í Laugardalnum. Í íbúðinni eru 5 góð svefnherbergi og þar að auki er búið að breyta bílskúrnum í góða 2ja herbergja íbúð. Búið er að endurnýja íbúðina með fallegum innréttingum frá HTH, fiskibeinsparketi og flísum á hluta af gólfi. Einstaklega stór og björt rými einkenna íbúðina með góðum gluggum í þrjár áttir. Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er eignin samtals 268,7 m2, þar af er bílskúrinn 84 m2 sem er innréttaður sem aukaíbúð, Hluti af bílskúrnum er nýtt sem geymsla sem aðaleignin nýtir fyrir sig og gengið er inn í hana utan frá bílskúrnum. Töluvert hefur verið endurnýjað bæði að utan sem innna, nánari lýsing neðar hérna í lýsingu. Aðeins eru fjórar íbúðir í stigahúsinu. Falleg fjölskyldueign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing:Tvö einkabílastæði fylgja íbúðinni á lóð fyrir framan bílskúrinn. Einnig eru bílastæði við gafl hússins sem tilheyra íbúum þess. Komið er inn í sameiginlegt anddyri og þaðan er gegnið upp eina hæð að íbúðinni.
Aðalíbúð:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með fallegu parketi á gólfi og fataskáp.
Setustofa + borðstofa: Inn af gangi frá forstofunni er komið inn í stórt alrými með fallegu fiskibeinaparketi á gólfi. Rýmið rúmar góða setustofu og borðstofu ásamt því að opið er yfir að eldhúsi. Góðir gluggar eru í rýminu sem heypir fallegri birtu inn í það.
Eldhús: Eldhúsið er opið í sama rými og setustofa + borðstofa. Falleg innrétting frá HTH með marmara borðplötu er í eldhúsinu. Innrétting er á einn vegg og nær upp í loft auk þess er stór eyja sem skilur á milli eldhúss og stofurýmis. Gott vinnupláss og skápapláss er í eldhúsinu. Innfelld lýsing er undir efri skápum. Stórt span helluborð er í eyjunni. ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Bæði ofn og örbylgjuofn eru í vinnuhæð. Í innréttingu er tækjaskápur sem hægt er að loka tæki sem þurfa að vera uppi við og tengd í rafmagn.
Auka stofa: Gengið er niður tvö þrep niður í rúmgott auka stofurými með stórum gólfsíðum gluggum, kamínu, flísum á gólfi og gólfhita.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtuaðstöðu. Salernið er upphengt. Góð innréttingu er undir vaski og beggja veggna við spegil sem er á vegg fyrir ofan vaskaborðið. Handklæðaofn er á vegg við baðaðstöðuna. Innbyggður skápur með góðu hirsluplássi er í rýminu. Gluggi er á baðherberginu.
Herbergi nr.1: Hjónaherbergið er mjög rúmgott með góðu fataskápum sem ná upp í loft og veggja á milli. Herbergið er með fiskibeinaparketi á gólfi.
Herbergi nr.2: Herbergið er rúmgott með góðum fataskápum og fiskibeinaparketi á gólfi.
Herbergi nr.3: Herbergi er bjart með fiskibeinaparketi á gólfi og fataskáp.
Herbergi nr.4: Mjög rúmgott herbergi með flísum á gólfi og gólfhita. Herbergið er inn af auka stofunni. Mjög góðir gluggar og hluti af þeim eru gólfsíðir.
Herbergi nr.5: Rúmgott herbergi með flísum á gólfi. Einnig er þetta herbergi inn af auka stofunni. Gott herbergi til að nýta sem vinnuherbergi eða auka geymslu innan íbúðar ef ekki er þörf á 5 svefnherbergjum.
Geymsla: Sérgeymsla fyrir eignina er í hluta af bílskúr sem er á móti aðalinngangi hússins. Geymsla er með inngögnu hurð utan frá bílskúrnum er er því alveg sérstæð frá auka íbúðinni sem útbúin hefur verið í restinni af bílskúrnum.
Þvottaherbergi: Í sameign á jarðhæð (ein hæð niður frá íbúðinni) er sameiginlegt þvottahús þar sem allar íbúðirnar hafa svæði fyrir sínar vélar. Aðeins fjórar íbúðir eru í stigahúsinu.
Svalir: Út frá auka stofunni er útgengt út á rými sem fylgir íbúðinni og hægt að gera svalir. Eina sem eftir er að gera þar er að setja handrið og eitthvað á gólfflötinn.
Auka íbúð: (Bílskúr)
Forstofa: Gengið er inn um sérinngang inn í aukaíbúðina sem búið er að útbúa í bílskúrnum. Þaðan er komið inn í forstofuhol með fataskáp og parketi á gólfi.
Alrými: (Eldhús, borðstofa + setustofa)
Eldhús: Eldhúsið er með góðri innréttingu á einn vegg og parketi á gólfi.
Borðstofa: Borðstofan er samliggjandi eldhúsinu í opnu rými.
Setustofa: Stofan er björt með parketi á gólfi. Þaðan er gengið út á sólpall sem snýr í suður.
Baðherbergi: Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og klæðningu á veggjum. Sturta, upphengt klósett og snyrtileg hvít innrétting er á baðherberginu.
Svefnherbergi: Svefnherbergið er rúmgott með parekti á gólfi.
Fataherbergi/geymsla er með parketi á gólfi.
Annað:Húsið var steinað 2007
Gluggar endurnýjaðir 2007 ( velfac gluggar)
Baðherbergi endurnýjað 2007
Þak á skúr endurnýjað 2015.
Skúr gerður upp 2019 (nýtt skolp, hiti í gólf, parket, loft og veggir endurnýjað og ljós)
Hiti í bílastæði við skúr
Eldhús í aðalíbúð gert upp 2020
þak nýtt 2023
Endurnýjaðir þrýstijafnarar í lagnagrind í sameign 2025.
Húsfélagið stendur af íbúðunum fjórum sem í stigahúsinu eru ásamt verslunarrýmum á jarðhæð og er hlutfall íbúðar þegar um sameiginlegar framkvæmdir utanhúss að ræða aðeins 21,18% af heildAllar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is