RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna, Álftamýri 14, íbúð 0301 fnr. 201-3796Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 80,4 fm og er íbúðarhlutinn skráður 76,1 fm og geymsla í kjallara 4,3 fm. Íbúðin er á 3. hæð. Húsið er byggt árið 1962. Um er að ræða mikið endurnýjaða, bjarta og skemmtilega þriggja herbergja íbúð, á þriðju hæð á frábærum stað í Álftamýri, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Sjá fyrirkomulag íbúðarinnar á
teikningu hjá ljósmyndum af eigninni og svo er hér fyrir neðan hlekkur á
þrívíddarupptöku af íbúðinni.
3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DFÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðkoma: Malbikuð bílastæði fyrir framan húsið. Tepplagður stigagangur upp að íbúðinni.
Forstofa: Eldvarnarhurð inn í íbúðina. Parket á gólfi. Stór fataskápur.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi Stórir gluggar og svalahurð á svalir sem snúa til suðurs.
Eldhús: Hvítmáluð innrétting. Parket á gólfi. Bakstursofn í vinnuhæð. Helluborð. Fallegt útsýni til norðurs og fjallasýn.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi. Góður fataskápur.
Barnaherbergi: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Innrétting með handlaug. Upphengt salerni.
Geymsla: Læst geymsla í kjallara 4,3 fm og einnig er sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Einnig er sameignlegt þvottahús með tækjum sem eigendur geta nýtt sér.
Samkvæmt seljanda eru framkvæmdir á ytra byrði þessar: 2007 - skipt um þak hússins, rennur og niðurfallsrör.
2011-2013 - allar lagnir endurnýjaðar í kjallara og húsið viðgert og málað að utan.
2019 - Almenn ástandsskoðun var framkvæmd í nóvember það ár, þar sem ekki var talið tímabært að fara í algjöra endurnýjun á gluggum eða ytra byrði.
Bílaplan var málað og útidyrahurð löguð fyrir ári síðan.
Samkvæmt seljanda eru framkvæmdir innan íbúðar þessar:2015 (fyrri eigendur) - nýjar innihurðir
2021-2022 (fyrri eigendur)
- Allt rafmagn endurnýjað í íbúðinni
- Lagt rafmagn fyrir þvottavél inn á baðherbergi
- Lagt fyrir netköplum inn að sjónvarpi og í barnaherbergi
- Baðherbergi alveg endurnýjað, þvottavél komið fyrir
- Ofn endurnýjaður í gestaherbergi
- Allt gólfefni í íbúðinni endurnýjað
- Nýr fataskápur í hjónaherbergi
- Tæki í eldhúsi endurnýjuð og fylgja eigninni (ísskápur, ofn, uppþvottavél)
2023 (fyrri eigendur)
- Eldvarnarhurð komið fyrir út að stigagang
Álftamýri 14 er einstaklega smekkleg og björt íbúð á góðum stað með alla þjónustu í nágrenninu. Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.is
- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.