Nýtt á skrá! Holtagerði 20 Kópavogi (Kársnesi) - Afar falleg neðri sérhæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi, 4 svefnh., þvottaherbergi og bílskúr!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega fallega, mikið endurnýjaða og vel skipulagða 4-5 herbergja (4 svefnherbergi eitt þó í minni kantinum) 143,1 fermetra neðri sérhæð með sérinngangi, þar af 22,4 fermetra bílskúr, á þessum frábæra fjölskyldustað á Kársnesi í Kópavogi. Verið er að klára múrviðgerðir á húsinu.
Yfirstandandi múrviðgerðir eru á húsinu sem seljandi ber kostnað af. Þá var þak á bílskúrum endurnýjað fyrir u.þ.b. 5-6 árum síðan. Auk þess voru gólfefni íbúðar (harðparket) endurnýjað fyrir u.þ.b. 5 árum síðan. Samkvæmt upplýsingum frá fyrri eiganda þá var þak nýlega endurnýjað fyrir 10-12 árum síðan.
Eignin skiptist í forstofu, rúmgóða stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, geymslu og bílskúr. Mjög gott skipulag og stórir gluggar í stofu til suðurs sem hleypa inn mikilli birtu. Góður 22,4 fermetra bílskúr með stæðum fyrir framan. Rúmgóð geymsla sem er 7,8 fermetrar að stærð.
Lýsing eignar:
Forstofa: Með flísum á gólfi.
Stofa: Með nýlegu harðparketi. Stofa er rúmgóð og rúmar vel setustofu og borðstofu. Stórir gluggar til suðurs.
Eldhús: Var endurnýjað árið 2017 á afar smekklegan máta. Hvítar innréttingar og harðparket á gólfi. Siemens stál bakaraofn, spansuðu helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggar til vesturs og norðurs, flísar á milli skápa og borðkrókur.
Þvottaherbergi: Með flotuðu gólfi, tenglum fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborð, vaskur og gluggi til norðurs.
Svefnherbergi I/skrifstofa: Með harðparketi á gólfi og glugga til norðurs.
Svefngangur: Með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Með harðparketi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi, skápum og glugga til norðurs.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með harðparketi á gólfi og skápum. Gluggar til suðurs.
Baðherbergi: Var endurnýjað árið 2017. Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask, handklæðaofn og upphengt salerni. Gluggi til suðurs.
Geymsla I: Er 7,8 fermetrar að stærð. Aðgengi að geymslu frá baklóð. Málað gólf, hillur og gluggi.
Bílskúr: Er 22,4 fermetrar, með rafmagnsopnun á bílskúrshurð, heitu/köldu vatni, rafmagni og glugga til vesturs.
Frábær staðsetning á fjölskylduvænum stað við Holtagerði á Kársnesi Kópavogi. Leikskóli, grunnskóli og sundlaug í göngufjarlægð. Fallegar göngu- og hjólaleiðir við fallega náttúruna allt í kring. Matvöruverslun, bókasafn og baðlón í næsta nágrenni.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is