Bogaslóð 2 á Höfn í Hornafirði, einstakt tækifæri til að eignast Hól eða Guðmundarhús, fyrsta íbúðarhúsið á Höfn, byggt árið 1897, en allt fallega uppgert að innann og endurbyggt á árunum 1995 -96.Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Snorri Snorrason lgf, sími:895-2115, kynna: einstakt 158,4 m² einbýlishús sem skiptist í 2kjallara, hæð og ris ásamt útigeymslu og garðhýsi. Húsið er einangrað og klætt að utan með lituðu bárujárni. Malbikað bílastæði og lóð með trjágróðri og veröndum.
Nánari lýsing Neðri hæð: FORSTOFA, flísar á gólfi, góður fataskápur.
BAÐ, endurnýjað 2011, flísar á gólfi, vegghengt wc, hvít hreinlætistæki, flísalagður sturtuklefi og skápur.
ÞVOTTAHÚS, flísar á gólfi, flísaplötur á veggjum og sturtuklefi.
MIÐRÝMI & STOFA, parket á gólfi, panil á veggjum og í lofti útgangur úr stofu út á stóra verönd.
ELDHÚS, parket ágólfi hvít viðareldhúsinnrétting með fulningahurðum, eldunartæki, gashelluborð, vifta og ofn frá IKEA, ljósar flísar á milli skápa í innréttingu.
Efri hæð:Skiptist í: HJÓNAHERB. 2 BARNAHERB. & BAÐHERBERGI, gólfin eru timburborð lökkuð, panil á veggjum og á súð. Baðherbergið er sér inn af hjónaherberginu, hvít hreinlætistæki og baðkar.
Kjallari: HERBERGI & GEYMSLA, parket á gólfi.
Á milli beggja hæða er fallegur límtrésstigi. Auðvelt er að breyta skipulagi td fækka herbergjum á efri hæð og stækka rýmin.
Að utan: Húsið er einangrað og klætt með lituðu bárujárni, stór verönd með skjólveggjum er við húsið út frá stofu og minni verönd við framhlið hússins. Útigeymsla og garðhýsi eru á lóð.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.