Valhöll kynnir fallegt 166 fm raðhús á tveimur hæðum auk rislofts og bílskúrs. Fallegur og gróinn garður með verönd sem gengið er út beint frá stofu þar sem mikil veðursæld ríkir. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, rúmgott eldhús, bjart alrými með góðri lofthæð. Risloft býður upp á möguleikann að vera með auka svefnherbergi eða skrifstofu. Úr stofu er útgengt út á skjólgóða verönd með heitum potti og garð sem snýr til suðurs. Húsinu hefur verið haldið vel við og verið endurnýjað töluvert að innan. Í húsinu er snjallhúsalausn frá Homey sem stýrir lýsingu, gardínum, heitum potti og öryggiskerfi. Búnaðurinn fylgir eigninni og seljandi afhendir kaupanda upplýsingar um uppsetningu, aðgang og stillingar við afhendingu.
Frábær staðsetning í rólegri götu. Stutt er í grunnskóla, fjölbrautarskóla og leikskóla sem og í íþróttamiðstöðina Miðgarð. Stór leikvöllur er í um 100 metra fjarlægð. Fallegar hjóla- og gönguleiðir eru í næsta nágrenni. Miðbær Garðabæjar er einnig í nánasta umhverfi þar sem einnig eru skólar ásamt verslunum, veitingastöðum og annarri almennri þjónustu.
Bókið einkaskoðun hjá Snorra Birni Sturlusyni, löggiltum fasteignasala í gegnum netfangið snorribs@valholl.is eða í síma 699-4407.
Samkvæmt fasteignayfirliti HMS er íbúðarhlutinn skráður 148 m2 auk 18,3 m2 bílskúrs, alls 166,3 m2.
Skipting eignar:
1.hæð: Anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymsla, þvottahús og bílskúr.
2.hæð: Stofa, borðstofa, eldhús, hol, hjónaherbergi, svefnherbergi (opið milli hjónaherbergis og svefnherbergis í dag) ásamt baðherbergi.
Risloft.
Nánari lýsing:
1. Hæð: Anddyri með góðum fataskáp. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Flísalagt baðherbergi með handklæðaofni og sturtuklefa. Gott þvottahús með vaskborði og skápum. Undir stiga upp á 2.hæð er geymsla.
2.hæð: Gengið er upp fallegan stiga. Stór og björt stofa með góðri lofthæð og stórum gluggum í suður. Útgengt er úr stofu út í fallega suðurverönd með stórum heitum potti. Eldhús er hálf opið inn að stofu með fallegri L-laga viðarinnréttingu, borðkrók, nýlegri innbyggðri Siemens uppþvottavél í vinnuhæð og nýrri borðplötu úr steini. Stórt hjónaherbergi með útgengt á stórar norðvestursvalir með fallegu útsýni. Svefnherbergi er við hliðina á hjónaherbergi en opið er milli herbergja í dag sem auðvelt er að breyta til baka. Geymsluloft er fyrir ofan hluta af herbergi (ekki hluti af fm.) Baðherbergi er físalagt með nýju baðkari og nýlegri innréttingu.
Úr holi er gengið upp í risloft sem ekki er inni í skráðri fermetratölu hússins. Risloftið hefur áður verið nýtt sem svefnherbergi og sjónvarpsherbergi en er núna nýtt sem vinnuherbergi.
Bílskúr: Bílskúrinn er 18,3 fm að stærð og með innkeyrsludyr og gönguhurð.
Gólfefni: Nýtt parket og flísar.
Lóð: Bílastæði steypt og með hitalögn. Garðurinn er tyrfður að hluta og með trjágróðri ásamt geymsluskúr. Stór verrönd sem er mjög skjólgóð og snýr í suður.
Niðurlag: Fallegt, vel skipulagt og vandað raðhús með fallegri lóð á góðum stað í Garðabæ. Stutt er í skóla, leikskóla og alla almenna þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / fasteignasali í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is
Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögfræðingur í síma 691-1931 eða í tölvupósti á netfangið oskar@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.