Fasteignaleitin
Skráð 6. maí 2025
Deila eign
Deila

Valshlíð 5

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
78.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
1.052.030 kr./m2
Fasteignamat
7.980.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Fasteignanúmer
2532609
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 5 - Íbúð 214.

Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin afhendist fullbúin desember 2025.

Sendu fyrirspurn á hlidarhorn@s8.is eða hringdu í síma 4152500 og fáðu allar upplýsingar um íbúðina eða bókaðu skoðun beint hjá byggingaraðila. Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

Virðuleg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns. Birt stærð er 78,8 fm þar af 6,1 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í opið anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu.
Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.


Nánari lýsing: Góður fataskápur í opnu anddyri. Gengið er beint inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu. Eldhús er með eyju. Útgengt er á suðursvalir. Taupe grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Gott svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, Taupe grá innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0063. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu Hlíðarhorns, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Smyrilshlíð 15
102 Reykjavík
89.1 m2
Fjölbýlishús
211
953 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 12
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 12
Valshlíð 12
102 Reykjavík
78 m2
Fjölbýlishús
211
1024 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 18
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 18
Smyrilshlíð 18
102 Reykjavík
69.9 m2
Fjölbýlishús
211
1143 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 12
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 12
Valshlíð 12
102 Reykjavík
78 m2
Fjölbýlishús
211
1024 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin