Lögeign kynnir eignina Baughóll 17, 640 Húsavík.
Um er að ræða vel staðsett 125,1 M² einbýlishús byggt úr holsteini árið 1967, þar af er bílskúrinn 36 M² og byggður eftir á árið 1972.
Nánari lýsing: Forstofa, stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, þvottahús, geymsla og bílskúr.Forstofa: komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Inn af forstofu er bæði gengið inn í geymslu og hol.
Stofa: er staðsett inn af holi, teppalagt gólf og getur nýst bæði sem sjónvarpsstofa og sem borðstofa.
Tvö svefnherbergi: eitt með dúk á gólfi og eitt parketlagt, hjónaherbergið er með rúmgóðum fataskáp.
Baðherbergi: með dúk á gólfi og flísar á veggjum að hluta, hvítur skápur, vaskur, sturtubaðkar og Wc.
Eldhús: upprunanleg hvít innrétting með efri og neðri skápum, viftu, bakarofn með helluborði og parketlagt gólf.
Þvottahús: er staðsett inn af eldhúsi. Er með flísalögðu gólfi, tengi fyrir þvottavél og auka útgengi er í þvottahúsinu.
Bílskúr: er rúmgóður og með rafdrifni bílskúrshurð, grifju,hillum og vinnuborði.
Annað: -Árið 2012 voru gluggar endurnýjaðir að mestu leyti í íbúðarhluta að frátöldum þremur gluggum.
-Eignin er að mestu leyti í upprunanlegu ástandi en innréttingar eru heillegar.
-Húsið er byggt úr holsteini og eru nokkrar sprungur á múrhúð að innan og að utan.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is eða Hinrik Marel Jónasson Lund lgf, í síma 8350070 eða netfanginu Hinrik@logeign.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á