Fasteignaleitin
Opið hús:05. okt. kl 17:00-18:00
Skráð 1. okt. 2026

Kópavogsbraut 59D

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
105.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
1.134.342 kr./m2
Fasteignamat
108.300.000 kr.
Brunabótamat
77.050.000 kr.
Byggt 2022
Garður
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2514988
Landnúmer
115301
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Viðarpallur
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Vandað og nýlegt einbýlishús á tveimur hæðum með tveimur baðherbergjum, suðurpalli og tveimur upphituðum bílastæðum
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 105,7 m² vandað og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum við Kópavogsbraut 59D í Kópavogi. Húsið er byggt árið 2022 úr gegnheilum timbureiningum og einkennist af vönduðum frágangi, sérsmíðuðum innréttingum og góðri nýtingu rýma.
Eignin býður meðal annars upp á tvö baðherbergi, gólfhita á báðum hæðum, skjólgóðan sérafnotareit til suðurs með palli, auk tveggja upphitaðra bílastæða með bílahleðslustöð. Staðsetningin er einstaklega fjölskylduvæn, með skóla handan götunnar, leikskóla og sundlaug í nágrenninu og stutt í fallegar göngu- og útivistarleiðir við strandlengju Kópavogs.

-  Frábær staðsetning miðsvæðis í Kópavogi
-  Tvö baðherbergi
-  Tvö upphituð bílastæði með bílahleðslustöð
-  Skjólgóður sérafnotareitur til suðurs með palli

-  Sérsmíðaðar innréttingar og gólfhiti á báðum hæðum

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is.

Húsið er skráð 105,7 m² samkvæmt HMS. Auk þess fylgir eigninni óskráður um 2,8 m² geymsluskúr úr lerki.
Eignin stendur á sameiginlegri lóð með Kópavogsbraut 59 A–D og fylgir henni sérafnotareitur. Ekkert formlegt húsfélag er starfandi.

Nánari lýsing:
Komið er inn um sérinngang í bjarta forstofu með fataskápum.
Á neðri hæð er bjart alrými þar sem stofa og eldhús renna fallega saman. Stórir gluggar hleypa góðri birtu inn í rýmið og þaðan er útgengi á rúmgóðan og skjólgóðan pall til suðurs á sérafnotareit eignarinnar. Sólarfilma er í stærstu gluggum.
Eldhúsið er vandað og vel skipulagt með sérsmíðaðri innréttingu frá KJK smíði og miklu skápaplássi. Þar er tvískiptur bökunarofn frá Samsung, spanhelluborð með innbyggðri viftu ásamt kastarabraut og ljósum úr Pfaff.
Á neðri hæð er einnig rúmgott herbergi sem í dag er nýtt sem sjónvarpsherbergi, auk baðherbergis með sturtu og innréttingu.
Teppalagður stigi, með teppi frá Parka, liggur upp á efri hæð. Undir stiganum hefur verið útbúið gott, lokað geymslurými með hurð sem nýtir rýmið einstaklega vel.

Á efri hæð er hjónaherbergi með stórum fataskáp og útgengi á svalir. Þar er einnig barnaherbergi með góðum fataskáp.
Baðherbergi á efri hæð er með sturtu og innréttingu. Húsið er því með tvö baðherbergi, eitt á hvorri hæð.
Þvottahús er flísalagt, með mikilli lofthæð og vegghillum. Inn af þvottahúsi er geymsla.

Gólfefni og frágangur: Gólfefni eru frá Birgisson og gólfhiti er á báðum hæðum. Allar innihurðir eru sérsmíðaðar og 220 cm á hæð og rofar og tenglar eru frá S. Guðjónsson.

Útisvæði og bílastæði:
Úr stofu er gengið út á skjólgóðan pall til suðurs sem myndar notalegt framhald af alrými hússins. Eigninni fylgir sérafnotareitur og sameiginlegur garður er með húsunum að Kópavogsbraut 59 A–D.
Grindverk, pallar, skjólgirðingar og skýli eru úr lerki og eru því viðhaldslítil.
Eigninni fylgja tvö upphituð bílastæði með bílahleðslustöð. Auk þess fylgir um 2,8 m² óskráður geymsluskúr úr lerki.

Staðsetning:
Kópavogsbraut 59D er einstaklega vel staðsett fyrir fjölskyldur. Skóli er handan götunnar og leikskóli og sundlaug eru einnig í næsta nágrenni. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslun, auk þess sem falleg strandlengja Kópavogs og fjölbreyttar göngu- og útivistarleiðir eru innan seilingar. Hér sameinast miðsvæðis staðsetning, fjölskylduvænt umhverfi og nálægð við bæði þjónustu og útivist.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/05/202257.950.000 kr.96.300.000 kr.105.7 m2911.069 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hæðarland 14
Á einni hæð
Skoða eignina Hæðarland 14
Hæðarland 14
800 Selfoss
96.1 m2
Raðhús
413
717 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Engjavík 12
Á einni hæð
Skoða eignina Engjavík 12
Engjavík 12
800 Selfoss
99.3 m2
Raðhús
413
704 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Efstihjalli 7
Efsta hæð
Skoða eignina Efstihjalli 7
Efstihjalli 7
200 Kópavogur
94 m2
Fjölbýlishús
413
722 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Bergvík 17
Á einni hæð
Skoða eignina Bergvík 17
Bergvík 17
800 Selfoss
100.4 m2
Raðhús
413
686 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin