Fasteignaleitin
Skráð 11. júlí 2025

Gjáhella 5

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
209.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
405.057 kr./m2
Fasteignamat
67.400.000 kr.
Brunabótamat
83.400.000 kr.
Mynd af Benedikt Ólafsson
Benedikt Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2312675
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
sagt í lagi
Raflagnir
sagt í lagi.
Frárennslislagnir
sagt í lagi
Gluggar / Gler
sagt í lagi
Þak
sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Gjáhella 5, 221 Hafnarfirði. Einstaklega vandað 209,6 fm atvinnuhúsnæði með fallegri íbúð á efri hæð, eignin er endabil.  Á fyrstu hæð er stór salur, birt stærð 108,4 fm, stór bílskúrshurð og salernisaðstaða. Á annarri hæð, birt stærð 101,2 fm, eru þrjú herbergi/skrifstofur, rúmgott þvottahús,  stílhreint baðherbergi, alrými og sérlega vandað eldhús. Engin vsk kvöð. Hér er um að ræða sérlega vandaða eign sem býður uppá mikla möguleika.

*Smelltu hér til að sjá myndband af eigninni*

Pantið tíma fyrir skoðun, nánari upplýsingar veita: 
Hallveig Jónsdóttir, Nemi í löggildingu, í síma 699-0496, netfang hallveig@stofnfasteignasala.is
Benedikt Ólafsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 661-7788, netfang bo@stofnfasteignasala.is


Nánari lýsing:
Fyrsta hæð: 

Birt stærð 108,4 fm, salur með nýmálaðu gólfi og veggjum, salernisaðstaða með flísum og upphengdu salerni, stór bílskúrshurð með rafrænni opnun. Mikil lofthæð. Salerni er í framkvæmdum og mun seljandi klára þær framkvæmdir. Undir stiga er tæknirými og geymslupláss.

Önnur hæð: 
Gengið upp flísalagðan stiga upp á aðra hæð. Öll hæðin er nýuppgerð.
Þrjú rúmgóð herbergi/skrifstofur, rúmgott þvottahús.
Stílhreint baðherbergi með flísum í hólf og gólf, handklæðaofn, upphengt salerni.
Alrými er stórt og góð lofthæð, með gólfhita.
Eldhús er með gólfhita, vandað og með eldhúsinnréttingu frá HTH, Ormsson, innbyggð AEG uppþvottavél, Innbyggður AEG ísskápur, glæsilegar AEG spanhellur með innbyggðri viftu.
Harðparket og flísar á gólfi og flísalagt baðherbergi.
Samkvæmt húsfélagsyfirlýsingu stendur til að settar verði svalir og opnast þá möguleiki á að hafa efri hæðina sem íbúðarhúsnæði, til er fyrir þessum framkvæmdum í hússjóði.
Eignin er skráð á B3 og M8. Unnið er að lokaúttekt.

*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*

Gjáhella 5 er tveggja hæða steinsteypt hús klætt að utan með bárujárnsklæðningu. Húsið er ætlað undir léttan iðnað og snyrtilega atvinnustarfsemi og skiptist í tíu 2ja hæða séreignarrými. Allar séreignir hafa sér hita- og rafmagnsmæli og eru hitagrindur staðsettar á 1. hæð hvers rýmis fyrir sig.

​​​​​​Ert þú að fara selja og vantar þig trausta og metnaðarfulla fasteignasala með reynslu og með þinn hag í fyrirrúmi?  Ef svo er þá er okkar heiðurinn að vera fasteignasalinn þinn eða þinna! Okkur vantar allar tegundir fasteigna á skrá vegna aukinnar sölu! 
"Við höfum Heilindi - Dugnaður - Árangur að leiðarljósi".

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. 
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/02/201938.900.000 kr.36.000.000 kr.209.6 m2171.755 kr.
07/02/201321.750.000 kr.12.000.000 kr.209.6 m257.251 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
665 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin