Eignatorg kynnir: Nýtt á skrá - Lögbýlið Miðtún og Miðtún 3, Rangárþingi eystra. Um er að ræða tvö fastanúmer sem seld eru saman. Eignir sem bjóða upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Samanlagt land eignanna er nærri 3,3 hektarar.
Skv. gildandi aðalskipulagi eru byggingarheimildir fyrir land frá þremur hekturum að stærð allt að 1.500 fm. og skv. því er heimilt að byggja Íbúðarhús, parhús, gróðurhús, gestahús, geymslu, skemmu og gripahús. Einnig er heimilt að hafa sérhæfðar byggingar fyrir aðra atvinnustarfsemi en landbúnað.
Á Miðtúni stendur íbúðarhús byggt árið 1981, samtals 134,9 fm. og hlaða byggð árið 1963 samtals 153,4 fm. Fjárhús eru í Fasteignaskrá, en þau hafa verið rifin.
Landið er skráð 31.129,2 fm.
Á Miðtúni 3 er sumarhús byggt árið 2017, samtals 25,6 fm. Lóðin er skráð 1.715,3 fm.
Nánari lýsing:
Íbúðarhús: Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskápum. Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með parketi á gólfi, gluggum á tvo vegu og hurð út á rúmgóðan sólpall þar sem er heitur pottur. Opið eldhús með parketi á gólfi og fallegri innréttingu. Þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu, glugga og hurð út. Lokaður svefnherbergisgangur með parketi á gólfi. Herbergi með parketi á gólfi. Hjónaherbegi með parketi á gólfi og skáp. Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefa og innréttingu. Herbergi með parketi á gólfi. Herbergi með parketi á gólfi. Herbergi með parketi á gólfi.
Skipt hefur verið um alla ofna, alla glugga, svalahurð og veggklæðningu á stórum hlua hússins.
Gestahús: Svefnaðstaða með parketi á gólfi, glugga og eldunaraðstöðu. Baðherbergi með dúk á gólfi, sturtu og innréttingu. Húsið hefur verið í útleigu til ferðamanna.
Hlaða er byggð úr bárujárnsklæddri timburgrind með malarbornu gólfi og góðri innkeyrsluhurð.
Land eignarinnar er skv. aðalskipulagi landbúnaðarland og hentar vel til áframhaldandi uppbyggingar.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0 - 1,5%. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.