Fasteignaleitin
Skráð 27. maí 2025

Skipholt 1(501)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
79.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.900.000 kr.
Fermetraverð
1.244.025 kr./m2
Fasteignamat
71.550.000 kr.
Brunabótamat
46.600.000 kr.
Mynd af Jórunn Skúladóttir
Jórunn Skúladóttir
Lögg. fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2522305
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
5
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýjar
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Háborg kynnir: Skipholt 1 ný endurbygg hús, aðalinngangur við Stórholt.. Íbúð 408, rúmgóða 4ja herbergja íbúð í fallegu enduruppgerðu lyftuhúsi í útjaðri miðborgarinnar. Aukin lofthæð. Inngangur frá sameign. Forstofa með góðum skápum, Þrjú svefnherbergi 15,2 fm, 11 fm og 8,8 fm . Stórt bjart alrými með útgengi á 6,7 fm austursvalir. Rúmgott baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Harðparket á gólfum og innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Sjálf íbúðin er 92,4 fm og geymsla í kjallara 8 fm. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð. Örstutt göngufæri í matvöruverlslun og niður á Hlemm sem er að umbreytast í grænt og vænt almenningsrými.
Sjá heimasíðu verkefnisins: Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.
Allar nánari upplýsingar veitir Jórunn lögg.fasteignasali í síma 845-8958 eða jorunn@haborg.is

Húsið: Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Í reisulegu húsi þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar 34 heillandi íbúðir og tvö atvinnurými. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð hússins auka lífsgæði allra íbúa, en þar er sólríkt og magnað útsýni til sjávar og fjalla.
HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Allar íbúðir afhendast fullbúnar með 8mm harðparketi frá Agli Árnasyni , og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG.

Hönnun: Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél) Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Garðurinn: Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.
Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.

Staðsetning: Hér er allt sem þarf fyrir nútímalegan miðborgarlífsstíl. Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni. Íbúar í Skipholti eiga rétt á íbúakorti og mega þá leggja í gjaldskyldum stæðum á svæði H á myndinni (sjá mynd í myndasafni) auk þess sem fullt er af ógjaldskyldum stæðum td í Skipholtinu. Íbúakortið kostar kr. 1.400- á mánuði fyrir rafmagns og vetnis bifreiðar, en kr. 2.800 fyrir aðrar tegundir bifreiða.


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (8)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þorrasalir 7
Jón Rafn_vefur.png
Skoða eignina Þorrasalir 7
Þorrasalir 7
201 Kópavogur
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 314
Bílastæði
Opið hús:25. apríl kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 314
105 Reykjavík
80.1 m2
Fjölbýlishús
312
1060 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Dúfnahólar 2
Bílskúr
Opið hús:29. apríl kl 18:30-19:00
Skoða eignina Dúfnahólar 2
Dúfnahólar 2
111 Reykjavík
122 m2
Fjölbýlishús
514
639 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 33
67 ára og eldri
B75A6463.jpg
Skoða eignina Hjallabraut 33
Hjallabraut 33
220 Hafnarfjörður
69.3 m2
Fjölbýlishús
211
864 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin