Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Álfkonuhvarf 49

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
88.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
54.440.000 kr.
Byggt 2004
3. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
22703731
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir fasteignir og Brynjólfur Snorrason, lgfs., kynna til sölu bjarta og fallega útsýnis íbúð á þriðju hæð (efstu), ásamt sér stæði í bílageymslu, í lyftuhúsi við Álfkonuhvarf í Kópavogi.  Eignin er skráð 88,2 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 81,4 m2 og geymsla 6,8 m2, og samanstendur af anddyri, tveimur svefnherbergju, baðherbergi, eldhúsi og stofu í opnu rými og rúmgóðum suður svölum. Þá tilheyrir eign sér bílastæði í lokaðri bílageymslu, rúmgóð sérgeymsla í kjallara húseignar sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Vel skipulögð eign í lyftuhúsi. 

ATH. Eignin verður ekki sýnd í opnu húsi en áhugasamir geta bókað einkaskoðun hjá Brynjólfi Snorrasyni, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is  

Nánari lýsing.

Anddyri: Komið upp á hæðina um snyrtilegt lyftuhús og inn í íbúðina um sérinngang af opnum svalagangi. Í anddyri er fataskápur auk fatahengis og á gólfi eru flísar. 
Eldhús: Falleg hvít háglans IKEA innrétting, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð og örbylgjuofn þar fyrir ofan, flísalagt á milli efri og neðri skápa, innbyggð lýsing undir efri skápum og gluggi til norðurs með opnanlegu fagi. 
Borð- og setustofa: Í opnu rými með eldhúsi, parket á gólfi og útgengi á rúmgóðar svalir með fallegu útsýni ma.a. yfir að Elliðavatni og til Bláfjalla.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, fjórfaldur fataskápur og fallegur horngluggi í suðaustur gefur góða birtu í herbergið. Á gólfi er parket.
Barnaherbergi: Til hægri frá anddyri. Ágætur fataskápur innan herbergis og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi er parket. 
Baðherbergi: Falleg ljós innrétting með ágætum neðri skáp, handlaug, spegli þar fyrir ofan og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Á baðherbergi er einnig handklæðaofn og sturta. Á gólfi og á veggjum eru flísar. 

í kjallara húseignar er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, sérgeymsla íbúðar og sér bílastæði með rafhleðslustöð í lokuðum bílakjallara. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Boðahlein 19
60 ára og eldri
Á einni hæð
Skoða eignina Boðahlein 19
Boðahlein 19
210 Garðabær
84,9 m2
Raðhús
211
929 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 1
Bílastæði
Skoða eignina Maríugata 1
Maríugata 1
210 Garðabær
102,5 m2
Fjölbýlishús
43
926 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 15
Opið hús:24. okt. kl 15:30-16:00
Urriðaholtsstræti 15
210 Garðabær
86,7 m2
Fjölbýlishús
211
933 þ.kr./m2
80.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 15
Opið hús:24. okt. kl 15:30-16:00
Urriðaholtsstræti 15
210 Garðabær
76,9 m2
Fjölbýlishús
211
948 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin