Fasteignaleitin
Opið hús:20. apríl kl 17:30-18:00
Skráð 16. apríl 2026

Stakkholt 2a - 504

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
88.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.400.000 kr.
Fermetraverð
901.249 kr./m2
Fasteignamat
82.300.000 kr.
Brunabótamat
57.770.000 kr.
Mynd af Berglind Hólm Birgisdóttir
Berglind Hólm Birgisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2350717
Landnúmer
103018
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
6
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
í lagi
Raflagnir
í lagi
Frárennslislagnir
í lagi
Gluggar / Gler
í lagi
Þak
í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður svalir
Upphitun
ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega björt, falleg og rúmgóð 2ja herbergja íbúð á 5.hæð í góðu lyftuhúsi miðsvæðis í Reykjavík. Með íbúðinni fylgir stór og góð geymsla i sameign ásamt góðu bílastæði í bílakjallara. Í eigninni er aukinn lofthæð í stærstum hluta hennar. Húsið er byggt árið 2014 af Þ.G.Verk ehf. Íbúðin nær sérlega góðri birtu þar sem hún er á 5.hæð og húsið á móti skyggir því hvorki á íbúðina né svalirnar sem eru skjólgóðar og sólríkar, snúa í suður. Íbúðin skiptist í: forstofu, eldhús, góða stofu + borðstofu, rúmgott hjónaherbergi, og rúmgott baðherbergi með frábærri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Eigninni fylgir góð geymsla í bílakjallara, 17,4 m2 og stæði á besta stað í lokaðri bílageymslu. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Nánari lýsing eignar: 

Komið er inn í anddyri á 1.hæð hússins með mynddyrasímakerfi. 
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með fallegu harðparketi á gólfi og tvöföldum fataskáp. Gott pláss er fyrir til dæmis skrifstofuhorn eða auka hillur eða skápa. 
Eldhús: Eldhúsinnrétting er á einn vegg + eyja sem snýr í átt yfir að stofunni. Innréttingar eru í dökku viðar útliti og efriskápar og borðplata eru í hvítum lit. Uppþvottaél er innbyggð í innréttinguna. Veggur fyrir aftan eldunareyjuna er með upphækkun svo ekki sé bein sýn frá stofu inn í eldhúsið. 
Stofa + borðstofa: Opið er frá eldhúsin að stofurýminu sem er sérlega gott. Borðstofa og setustofa eru saman í opnu björtu rými .Fallegt harðparket er á gólfi. Gengið er út frá stofunni út á góðar suðursvalir sem njóta sólar til suðurs. Svalirnar eru inndregnar í húsið og því mjög skjólgóðar. 
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með fallegu harðparketi á gólfi og góðum fataskápum í dökku viðar útliti. 
Baðherbergi / þvottaherbergi: Baðherbergið er rúmgott með gráum flísum á gólfi og á veggjum hjá sturtuaðstöðu. Sturta er beint á gólf með glerskilrúmi. Dökk viðarinnrétting er undir vaskaborði, hvít borðplata og ofanáliggjandi vaskur. Speglaskápur er á vegg fyrir ofan vaskinn. Á móti vaskeiningunni er innrétting sem gerir ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð með skúffum undir. Handklæðaofn er á vegg á móti sturtunni. 
Geymsla: í Sameign er stór geymsla 17,4 m2 
Bílakjallari: Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. 
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/04/202256.850.000 kr.69.000.000 kr.88.1 m2783.200 kr.
10/07/201532.450.000 kr.74.000.000 kr.175.7 m2421.172 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2015
Fasteignanúmer
2350717
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
E0
Númer eignar
38
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.320.000 kr.

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Safamýri 57
Opið hús:21. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Safamýri 57
Safamýri 57
108 Reykjavík
79.6 m2
Fjölbýlishús
312
928 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Borgarvegur 7
Bílskúr
Opið hús:16. apríl kl 17:30-18:00
Skoða eignina Borgarvegur 7
Borgarvegur 7
260 Reykjanesbær
178.6 m2
Einbýlishús
413
414 þ.kr./m2
74.000.000 kr.
Skoða eignina Hrafnaborg 3
Opið hús:16. apríl kl 16:30-17:00
Skoða eignina Hrafnaborg 3
Hrafnaborg 3
190 Vogar
111.7 m2
Fjölbýlishús
413
653 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 11
Bílastæði
Opið hús:22. apríl kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hafnarbraut 11
Hafnarbraut 11
200 Kópavogur
70.7 m2
Fjölbýlishús
211
918 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin