"LÆKKAÐ VERÐ"
Valhöll fasteignasala kynnir glæsilegt einbýlishús með aukaíbúð á vinsælum stað í Kórahverfinu í Kópavogi. Um er að ræða steinsteypt hús á tveimur hæðum sem er einagrað að utan og klætt fallegum flísum og því viðhaldslétt. Húsið er skráð 265,6 fm á stærð og þar af er innbyggður bílskúr 31,3 fm. Húsið er vel staðsett og er mikið og fallegt útsýni frá eldhúsi og stofu á efri hæð.
Aukaíbúðin er á jarðhæð hússins með anddyri, baðherbergi, tveimur svefnherbergjum og stofu og eldhúsi í opnu alrými. Sérinngangur er inn í íbúðina en einnig er innangengt inn í aðalíbúðarrýmið þannig að það er mjög einfalt að nýta aukaíbúðina sem hluta af aðalíbúðarrými.
Fyrir framan húsið er stórt steypt bílaplan með hitalögn. Fyrir aftan húsið er stór timburverönd með heitum og köldum potti, saunatunnu og stórum grasbala.
Húsið er m.a. gólfhita, innbyggðum ljósum í lofti, free@home ljósakerfi, loftskiptikerfi, arinn, innbyggðum blöndunartækjum, aukinni lofthæð og fallegum þakglugga fyrir ofan stigaganginn.
Þetta er fallegt og vel skipulagt hús á eftirsóttum stað í efri byggðum Kópavogs sem vert er að skoða.
Nánari lýsing:
Anddyri: með fataskáp, bekk og flísum á gólfi. Úr anddyri er stigi upp á efri hæðina með glerhandriði. Einnig er innangent í bílskúr frá anddyri.
Baðherbergi: með "walk in" sturtu, hornbaðkari, innbyggðum blöndunartækjum, innréttingu undir vask og skápum fyrir ofan, upphengdu salerni og flísum á gólfi og veggjum.
Eldhús: með fallegri hvítri innréttingu frá HTH, innbyggðum ísskáp, frysti og uppþvottavél, vínskáp, eyju, span helluborði, marmara borðplötum og parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa: samliggjandi í opnu og björtu rými með stórum gluggum með glæsilegu útsýni, arinn, parketi á gólfi og útgengi á rúmgóðar svalir með glerhandriði.
Hjónaherbergi: með fataherbergi innaf og parketi á gólfi.
Barnaherbergi I: með fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi II: með parketi á gólfi.
Þvottahús: með innréttingu með góðu skápaplássi, skolvask, þvottasnúrum og flísum á gólfi.
Bílskúr: 31,3 fm á stærð. Innangent í bílskúr frá anddyri. Epoxy á gólfi, rafmagnshurðaopnara, hitastýringar fyrir snjóbræðslu í plani og göngustígum og heita pottinum.
Aukaíbúð:
Inngangur: sérinngangur á vinstri hlið hússins. Einnig hægt að komast í hana í gegnum anddyri aðalrýmis.
Anddyri: með fataskáp og flísum á gólfi.
Baðherbergi: með "walk in" sturtu, innréttingu, skápum, handklæðaofni, upphengdu salerni og aðstöfðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Tvö svefnherbergi (annað skráð sem geymsla): bæði með fataskápum og parketi á gólfi.
Eldhús / stofa: saman í opnu alrými með parkti á gólfi og útgengi á verönd.
Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.