Fasteignaleitin
Skráð 10. júlí 2026

Leirvogstunga 21

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
370.9 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
275.000.000 kr.
Fermetraverð
741.440 kr./m2
Fasteignamat
208.150.000 kr.
Brunabótamat
138.950.000 kr.
JR
Jón Rafn Valdimarsson
löggiltur fasteignasali
Eignalisti
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2331229
Landnúmer
211520
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
1
Lóð
100.00
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Glæsilegt einbýli ofarlega í Leirvogstungu með glæsilegu útsýnu út Leiruvoginn í vestri með höfuðborgina í fjarska og tilkomumikið kvöldsólarlag allt árið um hring. Eiinbýlið er með tveimur aukaíbúðum, önnur aukaíbúðin er upprunaleg og er 57 fm að stærð en hinni var breytt úr hluta af aðalíbúðinni þ.e. lokað á milli hæða og hefur sú íbúð sérinngang og er um 100 fm að stærð. Bílskúr er 42,3 fm að stærð og með epoxy gólfi.


Eignin er vel hönnuð, skipulag gott og býður hún upp á þann möguleika á að afla tekna fyrir tvær aukaíbúðir eða sameina aðra þeirra aftur við efri hæð og leigja út hina aukaíbúðina.


Frábært fjölskylduheimili í vel skipulögðu og rólegu hverfi Mosfellsbæjar.

Nánari lýsing efri hæðar:

Fallegt spónlagt eikarparket er á gólfum hæðarinnar utan blautrýma sem eru flísalögð.

Anddyri: Fallegar flísar á gólfi, stór fataskápur og nægt pláss fyrir setubekk.

Bílskúr: Innangengt frá anddyri, 42 fm að stærð og með Epoxy á gólfi. Mjög rúmgóður og bjartur með tveimur gluggum með opnanlegum fögum. Góð lofthæð og fjarstýrður hurðaopnari á bílskúrshurð.

Svefnherbergi: Tvö herbergi þar af annað þeirra hjónasvíta með sérbaðherbergi sem er með sturtu með innbyggðum Vola blöndunartækjum eins og við handlaug sem situr ofan á vandaðri skápainnréttingu. Fallegar flísar á gólfi sem veggjum. Gangur að baðherbergi er með stórum fataskápum. Hitt herbergið er um 10 fm að stærð.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturta með skilrúmi, vandaðar innréttingar sem tæki.

Þvottahús: Flísalagt gólf og mikið skápapláss bæði við og undir stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Þetta rými varð til þegar lokað var á milli hæða en hægt er að opna það aftur með stiga sem leiðir niður að neðri hæðinni sem í dag er aukaíbúð
með tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og þvottahúsi (sjá hér fyrir neðan)

Eldhús: Fallleg hvít innrétting með miklu skápaplássi og kvarts stein á borðum. Vönduð blöndunartæki sem og Span helluborð, ofn og örbylgjuofn. Ekki þarf að tvínóna um útsýni frá eldhúsi en gluggar sem snúa vestur í útsýnisátt eru gólfsíðir. Útgengt er á stórar útssýnissvalir frá eldhúshluta sem eru með glerhandriði og lituðum viðarfjölum á gólfi.

Stofa og borðstofa: Fallegur gas arinn skilur að stofur frá eldhúshluta. Stofan er ílöng og kórónuð með gólfsíðum útsýnisglugga sem og gluggum meðfram hlið er veita hlýja birtu.

Aukaíbúð 1

Nánari lýsing: Á upprunalegri teikning var ávallt gert ráð fyrir að þessi íbúð yrði aukaíbúð með sérinngangi á norður hlið en um er að ræða 2ja herbergja íbúð rúmlega 57 fm að stærð.

Anddyri: Flísalagt og með litlu fatahengi.

Stofa og eldhús: Í stóru opnu rými með útgengt á hellulagða verönd.

Svefnherbergi: Stórt herbergi með fataskáp.

Aukaíbúð 2

Nánari lýsing: Aukaíbúð sem upprunalega var gert ráð fyrir að sé hluti aðalíbúðar en stigi niður í þennan hluta yrði frá þvottahúsi aðalhæðar ef breyta ætti aftur í upprunalegt horf. Íbúðin er vel skipulögð og nýtist frábærlega sem aukaíbúð eða einfaldlega til að sameina aftur með aðalhæð.

Anddyri: Flísalagt og með fataskáp.

Stofa og eldhús: Opið bjart rými þaðan sem útgengt er á hellulagða eftirmiðdegis verönd.

Svefnherbergi: Tvö rúmgóð

Baðherbergi: Flísar á gólfi. Sturta, upphengd salernisskál, skápainnrétting undir handlaug, vönduð tæki og loftræsting.


Utangengt er í inntaksými eignar sem er á neðri hæð og er um 12 fm að stærð.


Leirvogstunga 21 er sú tegund eignar sem kemur sjaldan í sölu enda ýmis tækifæri í boði fyrir vaxandi fjölskyldu og jafnvel þá sem eru að minnka við sig og geta þá notið þeirra tekna sem tvær aukaíbúðir skapa með leigutekjum. Fjögur bílastæði með snjóbræðslu ásamt tröppum sitt hvoru megin við hús sem liggja að aukaíbúðum.


Vandað og vel byggt hús sem hægt er að fá nánari upplýsingar um hjá Jóni Rafni fasteignasala í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lofnarbrunnur 28
IMG_1592.JPG
Skoða eignina Lofnarbrunnur 28
Lofnarbrunnur 28
113 Reykjavík
213.8 m2
Raðhús
423
758 þ.kr./m2
162.000.000 kr.
Skoða eignina Barðastaðir 41
Bílskúr
Skoða eignina Barðastaðir 41
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Grænlandsleið 19
Grænlandsleið 19
113 Reykjavík
240.4 m2
Raðhús
524
665 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Baughús 41
Skoða eignina Baughús 41
Baughús 41
112 Reykjavík
232.4 m2
Einbýlishús
724
774 þ.kr./m2
179.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin