ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu vandað einbýlishús við Lækjamót 4, 245 Sandgerði, birt stærð 186.5 fm.Eignin skiptist í forstofu, rúmgóða stofu, eldhús, baðherbergi, fjögur svefnherbergi, þvottahús og bílskúr. Lóð er frágengin með hellulögðu bílastæði. Lóð tyrfð með sólpalli, heitum pott og geymsluskúr á lóð.
Vinsæl staðsetning, stutt frá allri helstu þjónustu, svo sem grunnskóla, íþróttamannvirkjum og nýjan leikskóla. Leikvöllur bakvið hús á opnu svæði. Sækja söluyfirlit hér.Nánari upplýsingar veitir/veita:
Elín Frímansdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma
867-4885, tölvupóstur elin@allt.is
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma
698-6655, tölvupóstur pall@allt.is.
Gengið er inní rúmgóða
forstofu með góðum skápum. Flísar eru á gólfi.
Svefnherbergi er innaf forstofu með parketi og góðu skápaplássi.
Stofa og
gangur er parketlagt og
eldhús er opið inní stofu.
Flísar eru á eldhúsi og góð innrétting.
Á gangi eru 3 svefnherbergi auk baðherbergis.
Svefnherbergin eru öll rúmgóð og hafa parket á gólfi og góða fataskápa.
Inná
baðherbergi er vegghengt salerni, gott skápapláss, hornbaðkar, sturta og handklæðaofn.
Við enda gangs er gengið inní
þvottahús sem hefur góða innrétting með miklu skápaplássi. Útgengt er út á bílaplan.
Gengið er inní
bílskúr frá þvottahúsi. Bílskúr er rúmgóður, opinn, með miklu skápaplássi. Útgengt er út á baklóð.
Stórir gluggar í allar áttir tryggja góða birtu í öllum rýmum.
Einstaklega skemmtileg eign sem vert er að skoða.
Fasteignamat næsta árs 76.350.000
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62, 240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.