Fasteignaleitin
Opið hús:29. sept. kl 16:30-17:30
Skráð 8. júlí 2023

Skektuvogur 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
140.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
781.650 kr./m2
Fasteignamat
99.750.000 kr.
Brunabótamat
92.870.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2020
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Bílastæði
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2506801
Landnúmer
225185
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
08
Vatnslagnir
Upprunalegt (2020).
Raflagnir
Upprunalegt (2020).
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2020).
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2020).
Þak
Upprunalegt (2020).
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
SA-svalir.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 5 herbergja íbúð í lyftuhúsi að Skektuvogi 6 í Reykjavík. Sérmerkt bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni og er það vel staðsett og rúmgott. Lyfta er milli hæða. Sólríkar SA-svalir eru út frá stofu. Nýtt parket er á íbúðinni sem og nýjar innihurðir. Mikið er um barnafjölskyldur í húsinu og inni í garðinum eru leiktæki fyrir yngstu kynslóðina. Hraðaþrengingar eru í götunum, sérmerktir hjólastígar og góðir göngustígar eru inni í hverfinu. Einnig er yfirbyggð göngubrú með lyftu yfir Sæbrautina og auðvelt er að fara um stíga inn í Elliðaárdalinn eða Laugardalinn. Einnig er leikskóli innan hverfis. Öll helsta þjónusta er í nánasta nágrenni.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 

Eignin skiptist í forstofu, borðstofu, stofu, eldhús, fjögur herbergi, hol, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 140,6 m2. Stæði í bílageymslu er aukalega, s.s. ekki inni í fermetratölu.


*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax
Nánari lýsing:
Forstofa
 er inn af svalargangi. Innan íbúðar er komið inn á parketlagt gólf. Ljós innfelldur fataskápur fyrir yfirhafnir.
Eldhús er með ljósri innréttingu á þremur veggjum. Lýsing er undir efri skápum. Innbyggður ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél, hvort tveggja fylgir. Ofn, helluborð og vifta. Tæki eru Electrolux. 
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Parket er á gólfum og útgengi er út á rúmgóðar SA-svalir með harðvið á svalargólfi.
Herbergi I, II og III eru öll með tvöföldum ljósum fataskápum sem ná upp í loft, öll rúmgóð og með parketi á gólfum. 
Herbergi IV er með fjórföldum ljósum fataskáp sem nær upp í loft. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með þreplausri sturtu með gleri, hvítum handklæðaofni, upphengdu salerni, ljósri skápaeiningu undir handlaug og veggfestum speglaskáp. Ljósar gólfflísar á gólfi og hluta veggja.
Þvottahús er innan íbúðar. Veggfestar flex snúrur á vegg. Ljós innrétting með stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Ljósdrapplitaðar gólfflísar.
Bílageymsla er undir húsinu á tveimur hæðum og er stæði íbúðar í þeim neðri, merkt S6-208. Mjög grúmgott stæði við opinn enda þar sem rampur er. Rafmagnshleðslustöð í stæði fylgir.
Geymsla er sér í sameign. Birt stærð 21,4 m2. 
Hjóla- og vagnageymslur eru tvær og eru í sameign.
Lyfta er milli hæða og er stigagangur teppalagður. Utanáliggjandi svalargangar eru steyptir með skjólgleri. Lyklalaust aðgengi er í sameign.
Garður er gróinn með grasflötum og hellulögðum stéttum, viðarpöllum með handriðum og leiksvæði fyrir börn. Kvöldlýsing er við göngustíga í garðinum.
Djúpgámar eru framan við hús. Einstaklega snyrtileg útfærsla á flokkun á rusli.
Rafmagnshurðaopnarar eru á helstu hurðum í sameign.

Innréttingar eru frá GKS ehf. Innihurðar eru frá Parka og parket er frá Harðviðarval. Flísar eru frá Álfaborg.
Húsið er staðsteypt, einangrað og klætt að utan með álklæðningu m/innbrenndum lit á ál-undirkerfi. Byggingarðaili er ÞG Verk ehf.

Leikskólinn Ævintýraborg
Vogaskóli
Menntaskólinn við Sund

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 8640061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/02/202166.450.000 kr.67.900.000 kr.140.6 m2482.930 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2020
Fasteignanúmer
2506801
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
N3
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.320.000 kr.

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kirkjuteigur 23
Opið hús:28. sept. kl 17:30-18:00
Kirkjuteigur.jpg
Skoða eignina Kirkjuteigur 23
Kirkjuteigur 23
105 Reykjavík
165.4 m2
Fjölbýlishús
513
771 þ.kr./m2
127.500.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (205)
Hleðslustöð
Opið hús:26. sept. kl 13:00-13:30
Stofa copy.png
Skoða eignina Laugaborg (205)
Laugaborg (205)
105 Reykjavík
86.8 m2
Fjölbýlishús
312
990 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (118)
Hleðslustöð
Opið hús:26. sept. kl 13:00-13:30
118.jpg
Skoða eignina Laugaborg (118)
Laugaborg (118)
105 Reykjavík
92.3 m2
Fjölbýlishús
312
973 þ.kr./m2
89.800.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (307)
Hleðslustöð
Opið hús:26. sept. kl 13:00-13:30
307.jpg
Skoða eignina Laugaborg (307)
Laugaborg (307)
105 Reykjavík
89.3 m2
Fjölbýlishús
312
984 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin