Fasteignaleitin
Skráð 8. sept. 2026

Grensásvegur 3

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
501.5 m2
2 Baðherb.
Verð
225.000.000 kr.
Fermetraverð
448.654 kr./m2
Brunabótamat
203.850.000 kr.
Byggt 1967
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20233012
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Skrifstofuhæð á góðum stað miðsvæðis í borginni. Endi, gluggar í þrjár áttir. Útsýni. 

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is 

*** Sækja söluyfirlit *** 

Um er að ræða nánar tiltekið eign merkt 0201 við Grensásveg 3, 108 Reykjavík, F2023301. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 501,5 fm. Skrifstofuhæð á góðum stað. Hæðin skiptist í dag í þrjú skrifstofurými sem eru 283,1 fm, 143,8 fm og 25,9 fm en auðvelt væri að opna á milli tveggja stærri rýmanna aftur. Skrifstofurýmin skiptast í bæði lokaðar skrifstofur og opin rými. Tvö góð fundarherbergi með ljómandi góðu útsýni. Einnig væri hægur leikur að breyta skipulaginu þar sem burður er í súlum. Eldhús og kaffistofa í stærsta rýminu og einnig í næst stærsta rýminu. Hæðin er í enda hússins með glugga í þrjár áttir. Snyrtingar, geymsla og ræstikompa á hæð í sameign. Sameiginleg geymsla í kjallara. 

Hæðin var öll endurnýjuð árið 2016 og endurinnréttuð og skipt úr einni í þrjár minni skrifstofueiningar. Rafmagn, rafmagnstöflur, tölvulagnir, loftakerfi voru endurnýjuð, loftræstikerfi var sett upp, ný lýsing og nýtt brunaviðvörunarkerfi. Bílastæði eru á lóð fyrir framan og aftan húsið og við húsgaflinn.

Eignin á hlut í byggingarétti lóðarhafa Grensásvegi 3-5-7. 

Yfirlit yfir framkvæmdir: 
Frárennsli endurnýjað 2019
Raflagnir og tafla hafa verið endurnýjuð
Gler að mestu endurnýjað um 2010
Þak yfirfarið á sama tíma og stór hluti hússins var klæddur að utan um 2010

Nánari upplýsingar gefa:
Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is
Kjartan Hallgeirsson löggiltur fasteignasali, sími 824-9093, kjartan@eignamidlun.is 

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dugguvogur 43
Skoða eignina Dugguvogur 43
Dugguvogur 43
104 Reykjavík
471,5 m2
Atvinnuhúsn.
1
Fasteignamat 98.500.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Grensásvegur 3
Skoða eignina Grensásvegur 3
Grensásvegur 3
108 Reykjavík
501,5 m2
Atvinnuhúsn.
6
449 þ.kr./m2
225.000.000 kr.
Skoða eignina Bæjarhraun 6B
Skoða eignina Bæjarhraun 6B
Bæjarhraun 6B
220 Hafnarfjörður
478,3 m2
Atvinnuhúsn.
12
585 þ.kr./m2
279.800.000 kr.
Skoða eignina Álfheimar 74
Skoða eignina Álfheimar 74
Álfheimar 74
104 Reykjavík
220 m2
Atvinnuhúsn.
1
Fasteignamat 81.900.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin