Fasteignaleitin
Skráð 26. mars 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
86 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
34.700.000 kr.
Fermetraverð
403.488 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
960270324
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góðar svalir og möguleiki á sér þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR - FRÁBÆR STAÐSETNING - AÐEINS NOKKRAR EFTIR*
Rúmgóðar og fallegar 3ja herb. íbúðir á frábærum stað á vinsæla Los Dolses/La Zeniasvæðinu, stutt frá Villamartin, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 20 mín göngufæri á fallega strönd og 15 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard,  flottu verslunarmiðstöðina. Örstutt göngufæri í Los Dolses þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastaða og verslana. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði á þessum vinsæla stað. Tilbúnar til afhendingar í júní 2023.

Upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

Nánari lýsing:

Um er að ræða nýbyggð lyftuhús með 3ja herb. vel hönnuðum íbúðum. Íbúðirnar eru allar með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Þvottahús inn af eldhúsi. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð með sér garði , miðhæðum með góðum svölum eða á efstu hæð og þá með góðum svölum og sér þaksvölum. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Flottur sundlaugargarður og góð leikaðstaða fyrir börnin. Frábært útsýni m.a. til sjávar frá íbúðum á efri hæðum.

Sérmerkt bílastæði inni á lokaðri lóð fylgja íbúðunum. 

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega. Íbúðirnar eru tilbúnar og til afhendingar við kaupsamning, þannig að hægt er að flytja strax inn og byrja að njóta í sumarfríinu.

Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK:
3ja herbergja íbúð á miðhæðum með sér svölum, frá 229.800 Evrum (ISK 34.700.000)
3ja herb íbúð á jarðhæð með verönd og sér garði,  frá 248.700 evrum  (ISK 37.300.000)
3ja herb penthouse íbúð með svölum og sér þaksvölum, frá 289.950 evrum (ISK 43.500.000)
Ofan á öll verð leggst 10% skattur og ca. 3% kostnaður vegna kaupanna, þe. ca. 13% samtals kostnaður vegna kaupa.

Íbúð 69 fm
svalir 17 fm
Samtals 86 sérafnotafm.

Mikið innifali í verðinu:
Gólfhiti í báðum baðherbergjum
Loftkæling/hitun, fulltengd og tilbúin til notkunar.
Rafdrifnir gluggahlerar.
Rafmagnstæki í eldhúsi, eldavél, uppþvottavél og ísskápur.
Þvottavél.
Vel innréttaðir skápar í svefnherbergjum.
Öryggiskerfi og snjallkerfi.
Sérmerkt bílastæði inni á lokaðri lóð.

Hægt er að fá íbúðina fullbúna fallegum húsgögnum gegn aukagjaldi, þannig að hægt er að flytja beint inn og byrja að njóta lífsins í Spánarsólinni.

Flestar íbúðirnar snúa í suður, en einnig hægt að velja íbúðir í austur (morgunsól) eða vestur (kvöldsól)

Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í  göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. í Los Dolces og La Zenia Boulevard, vinsælu verslunarmiðstöðinni með úrval verslana, veitingastaða og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR: Spánareignir aðstoða kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og við tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, innisundlaug, air con, bílastæði, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin, Los Dolses,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Spánn - Costa Blanca
97 m2
Fjölbýlishús
322
372 þ.kr./m2
36.100.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Altos
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Los Altos
Spánn - Costa Blanca
75 m2
Fjölbýlishús
322
461 þ.kr./m2
34.600.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - El Raso
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - El Raso
Spánn - Costa Blanca
78 m2
Fjölbýlishús
322
459 þ.kr./m2
35.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
92 m2
Fjölbýlishús
322
368 þ.kr./m2
33.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache