Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Þórunnarstræti 108 AUm er að ræða 5 herbergja neðri hæð í tvíbýli, miðsvæðis á Akureyri í næsta nágrenni við Sundlaug Akureyrar. Eignin er samtals 154,1 fm. þar af er þvottahús og geymsla í kjallara 36,6 fm..-- Þórunnarstræti 108 B er einnig til sölu og kemur til greina hjá eiganda að selja allt húsið í heild sinni. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband á skrifstofu -- Eignin skiptist í forstofu, gang, 4 svefnherbergi, stofu, baðherbergi og eldhús auk þvottahús og geymslu.
Forstofa er með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Gangur er nokkuð opinn, með parket á gólfi og tengir öll rými íbúðarinnar.
Svefnherbergi eru fjögur, öll með parket á gólfi og úr einu þeirra er útgengt út á svalir til suðurs og vesturs. Gerð voru tvö svefnherbergi úr stofurými á teikningum og stofa er í dag í suðvesturhorni íbúðar sem er skráð sem herbergi á teikningar.
Baðherbergi var endurnýjað fyrir um 20 árum, það er flísalagt í hólf og gólf, sturta, upphengt salerni, innrétting í kringum vask, handklæðaofn og opnanlegt fag.
Stofa er björt með gluggum til tveggja átta og parket á gólfi.
Eldhús er með dúk á gólfi, upprunalegri innréttingu og eldhúskrók. Úr eldhúsi er gengið niður í kjallara.
Þvottahús og geymsla er í kjallara, þar er sér inngangur auk þess sem aðgengilegt er niður um eldhús.
Annað:-Laus til afhendingar við kaupsamning-Ljósleiðari
-Húsið málað í kringum 2014
-Eirlagnir að hluta í ofnakerfi
-Jarðvegsskipt var í kringum húsið upp úr 2000, líklega drenað
-Lóðin er sameiginleg en sérafnotafletir vegna bílastæða eru við húsið. Neðri hæð á til vesturs frá suðurhorni bílskúrs og að lóðarmörkum.
-Frábær staðsetning, stutt í leik og grunnskóla ásamt Sundlaug Akureyrar, Glerártorg og miðbæinn.
-Gluggar í húsinu orðnir lélegir
-Þak þarfnast orðið viðhalds
-Húsfélag er ekki virkt
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:olafur@byggd.is
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955