Fasteignaleitin
Skráð 16. feb. 2026

Klapparberg 6

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
240 m2
7 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
541.250 kr./m2
Brunabótamat
121.550.000 kr.
Byggt 1981
Svalir
Pallur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
20511556
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Tveir inngangar

*****Seld með fyrirvara*****

Borg fasteigna sala kynnir: Fallegt og vel skipulagt 240fm einbýlishús á tveimur hæðum með útsýni og skjólgóðum garði í grónu hverfi á besta stað í lokuðum botnlanga fárra húsa í jaðri Breiðholtsbyggðar. Eignin býður upp á marga möguleika á endurskipulagi.


Eignin skiptist í íbúð á hæð 120 fm + neðri hæð 96,3 fm og bílskúr 23,7 fm 
Neðri hæð:  Forstofu, hol/gangur, gestasnyrtingu, 3 svefnherbergi, þvottahús og geymslu. 
Efri hæð: Stofu/borðstofu, eldhús, sjónvarpsrými, 3 svefnherbergi, baðherbergi.
gengið er inn á neðri hæðina - fallegur stigi er upp á efri hæðina. Pallur með nokkrum þrepum upp og niður.
Þar sem húsið er ofan götu og byggt inn í hlíð þá er opna rými efri hæðarinnar (stofa og eldhús) með útgengi af hæðinni beint út í garð.

Nánari lýsing á neðri hæð: Forstofa með flísum á gólfi, skáp. Hol/gangur með flísum á gólfi. Gestasnyrting með flísum á gólfi. 3 svefnherbergi öll parketlögð. Þvottahús rúmgott með L-laga innréttingu. Geymsla: Rúmgóð með hillum.
Steyptur parketlagður stigi er upp á efri hæðina.

Nánari lýsing á efri hæð: Komið í alrými stofu/borðstofu með parket á gólfi, uppteknum viðarklæddum loftum  og útg. út á hellulagða suðurverönd með útiarinn. Eldhúsið er opið við stofuna með U-laga innréttingu, borðkrók og útgengi út í garð. Úr sama rými er gegnið upp nokkur þrep og á svefnherbergisgang þar sem sjónvarpsrýmið er einnig. Af þeim gangi eru annarsvegar 3 rúmgóð herbergi með parket á gólfi og skápum, útg. úr hjónaherbergi á norð/austur svalir og hins vegar baðherbergi með flísum á gólfi og vegg innbyggðri sturtu og innréttingu, gluggi er á baði.

Bílskúrinn: Innangengur úr forstofu. Epoxy á gólfum. Gluggar á hlið. Rafmagnsopnun. Hann er með hita, rafmagni, heitu og köldu vatni, gluggum.  Hellulögð bílastæði með hita eru framan við húsið.
Lóðin: Gróin lóð með hellulagðri verönd /skjólvegg.

Góð staðsetning; Öll þjónusta og öll skólastig eru í göngufæri. Stutt í íþróttamiðstöð, golfvöll og matvöruverslanir auk fallegra gönguleiða.

Nánari upplýsingar veita :
Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali í tölvupósti victor@fastborg.is og í síma: 868 2222
Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali í tölvupósti ulfar@fastborg.is og í síma 788-9030


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mýrarás 2
Opið hús:28. júlí kl 17:00-17:30
IMG_9890.JPG
Skoða eignina Mýrarás 2
Mýrarás 2
110 Reykjavík
222.5 m2
Einbýlishús
625
679 þ.kr./m2
151.000.000 kr.
Skoða eignina Langabrekka 26
Bílskúr
Skoða eignina Langabrekka 26
Langabrekka 26
200 Kópavogur
261.8 m2
Einbýlishús
634
725 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Skoða eignina Benijófar Pueblo - Spánn
Benijófar Pueblo - Spánn
Spánn - Costa Blanca
240 m2
Einbýlishús
524
444 þ.kr./m2
106.500.000 kr.
Skoða eignina Eikardalur 10
Heitur pottur
Opið hús:27. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Eikardalur 10
Eikardalur 10
260 Reykjanesbær
259 m2
Einbýlishús
625
502 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin