Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
5 herb. 136fm steinsteypt einbýlishús ásamt 29,3fm frístandandi bílskúr á stórri og skjólsælli leigulóð í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Hitaveita, ljósleiðari og stór lóð með hávöxnum trjágróðri.
Forstofa er flísalögð og stór skápur þar fyrir yfirhafnir, lítið forstofuklósett og ágætt forstofuherbergi með fataskáp.
Hol með dyrum út á stóran pall, afmarkað frá stofu með skilrúmi.
Stofan björt og rúmgóð. Eldhúsið með hvítri innréttingu, vönduðum tækjum og uppþvottavél sem fylgir við sölu.
Herbergjagangur með fataskápum, þremur svefnherbergjum, og baðherbergi, hjónaherbergið ágætlega stórt og með stærstu skápunum. Baðherbergið með stórum sturtuklefa, skáp, klósetti, vaski og handklæðaofni, gólf þess og veggir flísalagðir.
Í bakdyrainngangi eru þvottasnúrur og hyllur, inntaksrými þar við hliðina með skolvaski og tenginum fyrir þvottavél, og geymsla með hillum.
Gólfefni í húsinu eru parket á stofu og gangi en dúkar á herbergjum og korkflísar á eldhúsi.
Bílskúrinn er snyrtilegur og með nýlegum innkeyrsludyrum, bílaplanið malbykað og stór hellulögð stétt við enda hússins að pallinum í garðinum.
Í Árnesi er grunnskóli sveitarfélagsins og félagsheimilið Árnes, Neslaug, N1 bensínstöð með nauðsynjaverslun og góðu grilli.
Þá er veglegt íþróttahús í byggingu.
Stutt er í Þjórsárdalinn með öllum hans náttúruperlum, og 30mín akstur á Selfoss.
Húsið er í eigu Ríkissjóðs og Skeiða- og Gnúpverjahrepps og hefur staðið autt í nokkra mánuði. Annars hefur það verið bústaður skólastjóra, sveitarstjóra eða kennara í gegnum tíðina og fengið almennt ágætt viðhald.
T.d. var hitakerfi þess endurnýjað að einhverju leiti á árunum eftir 2000, húsið málað að utan 2014, pallur stækkaður 2015, bílastæðið malbykað árið 2018 og hellulögn bak við húsið endurnýjuð sama ár svo eitthvað sé nefnt.
En ljóst er að það er kominn tími á endurnýjun og viðhald að einhverju leiti og eru áhugasamir hvattir til að skoða húsið vel og jafnvel með þar til bærum sérfræðingum til að gera sér sem besta grein fyrir ástandi þess og viðhaldsþörf áður en kemur að tilboðsgerð.
Vitað er að gluggar eru orðnir lúnir og opnanleg fög óþétt og síðustu íbúar urður varir við leka úr lofti eins herbergis við ákveðin verðurskilyrði.
En eigendur hafa eðli málsins samkvæmt aldrei búið í húsinu og hafa því takmarkaða þekkingu á ástandi þess umfram það sem að framan greinir og blasir við við skoðun.
- - VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN - -
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565 loftur@husfasteign.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.