Fasteignaleitin
Skráð 1. maí 2026

Nýlendugata 34

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
102.5 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
1.072.195 kr./m2
Fasteignamat
99.350.000 kr.
Brunabótamat
84.450.000 kr.
EA
Elín Alfreðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2511421
Landnúmer
223070
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Upprunlegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
þaksvalir og franskar svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Galli er í klæðningu á húsinu. Gallinn felst í að litur klæðningarinnar að það til að tærast í söltu umhverfi. Gallinn átti sér stað við framleiðslu og framleiðandinn því ábyrgur. Búið er að panta nýtt efni frá framleiðanda og áætlað er að Málmtækni ehf. er söluaðili og sér um að klæða húsið í nýja klæðningu sumarið 2026. Enginn áætlaður kostnaður fyrir húsfélag hússins tengt verkinu.
Valhöll fasteignasala kynnir: *BÓKIÐ EINKASKOÐUN* Elín lgf í síma 8993090 eða elina@valholl.is 

Sérlega heillandi og einstök 102,5 fm 4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum í grónu hverfi í gamla Vesturbæ Reykjavíkur, þar sem vandað val á efnum og nútímaleg hönnun mætast. Húsið er byggt úr CLT (krosslímdum timbureiningum), sem er vistvæn og vönduð byggingaraðferð er gefur eigninni sérstakan karakter. Samkvæmt skilalýsingu uppfyllir húsið kröfur um Svansvottun. Gegnheilt eikarparket frá Birgisson, lagt í fiskibeinamynstri, flæðir um alla íbúðina og gefur henni glæsilegt og samhangandi yfirbragð milli hæða.

Gengið er inn á neðri hæð íbúðarinnar þar sem komið er inn í rúmgott sjónvarpshol. Þar eru franskar svalir með gólfsíðum glugga sem hleypir mikilli birtu inn í rýmið. Á hæðinni er rúmgott hjónaherbergi og barnaherbergi, bæði með góðum skápum, auk minna herbergis með glugga sem nýtist vel sem skrifstofa. Baðherbergið er flísalagt með vönduðum innréttingum, blöndunartækjum frá GROHE og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Efri hæðin er bjart alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa renna saman í eitt. Eldhúsið er búið mjög veglegri eyju með stóru AEG spanhelluborði og tveimur ofnum, þar af einum samofnum bakara/örbylgjuofni. Lofthæðin í rýminu er allt að 4,3 metrar, sem gefur hæðinni skemmtilegan blæ og gott birtuflæði. Úr stofunni er gengið út á þaksvalir þar sem nýtur við fallegs útsýnis yfir gamla Vesturbæinn og Reykjavíkurhöfn.

Íbúðin er tæknilega vel útbúin með gólfhita í öllum rýmum, loftræstikerfi og innbyggðu sprinklerkerfi. Lýsing er hönnuð af Lumex á efri hæð og öll tæki og frágangur vandaður. Á lóðinni er sameiginlegt hjóla- og sorpskýli.

Samkvæmt skráningu hjá HMS er neðri hæðin skráð 64,4 fm og efri hæðin 37,1 fm, samtals 102,5 fm.

Húsgjöld eru 18.224 kr. á mánuði.

EINSTÖK EIGN Á FRÁBÆRUM STAÐ Stutt í lífið og menninguna en laus við skemmtanalæti miðbæjarins. SÝND Í EINKASKOÐUNUM

Allar nánari upplýsingar veitir Elín Afreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða elina@valholl.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
18/02/202160.000.000 kr.73.500.000 kr.102.5 m2717.073 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 5B - íb 101
Bílastæði
Jöfursbás 5B - íb 101
112 Reykjavík
106.8 m2
Fjölbýlishús
31
842 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 7B
Opið hús:03. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Jöfursbás 7B
Jöfursbás 7B
112 Reykjavík
54.9 m2
Fjölbýlishús
211
1073 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Bragagata 25
Opið hús:06. maí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Bragagata 25
Bragagata 25
101 Reykjavík
65.6 m2
Fjölbýlishús
311
1066 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Njálsgata 86
Opið hús:04. maí kl 12:15-12:45
Skoða eignina Njálsgata 86
Njálsgata 86
101 Reykjavík
55.8 m2
Fjölbýlishús
211
894 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin