ALLT fasteignasala kynnir bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í nýlegu fjölbýli í Sandgerði. Eldhús og stofa mynda opið alrými með gólfsíðum gluggum sem hleypa birtunni inn, og úr stofu er gengið beint út á skjólgóða timburverönd. Gólfhiti er í allri íbúðinni og henni fylgir sérgeymsla. Íbúðin er laus við kaupsamning.
***Sérinngangur
***Timburverönd með skjólveggjum á 19,7 m² sérafnotafleti
***Gólfhiti
***Sérgeymsla
***Laus við kaupsamningNánari upplýsingar veita:
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.
Haukur Andreasson Löggiltur fasteignasali, í síma 8669954, tölvupóstur haukur@allt.is.
Nánari lýsing:Anddyri: Flísar á gólfi og skápar við inngang.
Eldhús: Opið inn í stofu. Innrétting með dökkri viðaráferð, hvítum efri skápum og ljósri borðplötu. Bakarofn í vinnuhæð, helluborð og háfur. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými samliggjandi eldhúsi, með gólfsíðum gluggum. Útgengt á timburverönd.
Svefnherbergi: Tvö talsins, fataskápar í því stærra.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með vaski, upphengt salerni og opin sturta. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla: 2,9 m².
Um húsið: Tveggja hæða steinsteypt fjölbýlishús með 11 íbúðum. Samkvæmt byggingarlýsingu eru útveggir einangraðir að utan og klæddir bárujárni og sléttri málmklæðningu. Gluggar og útihurðir eru úr ál-tré. Eigninni fylgja tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.
Íbúð sem hentar vel fyrstu kaupendum, þeim sem vilja minnka við sig eða sem fjárfesting. Hafðu samband og bókaðu skoðun, við sýnum samdægurs.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.