Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:Nýlegt 26,3 m2 geymsluhúsnæði við Álhellu 20M í Hafnarfirði.
Engin VSK-kvöð er á eigninni. Eignin er laus við kaupsamning.
Bilið er með vélslípuðu gólfi og niðurfalli.
Vaskur með heitu og köldu vatni er fremst í bilinu. Ofn er innst í bilinu.
Bílskúrshurð (2,6m x 2,5m) með inngönguhurð, búið er að setja tengil fyrir rafdrifinn hurðaopnara.
Rafmagnstafla með 3ja fasa rafmagni.
Lofthæðin er frá 3,1m til 4,26m. Innra mál bilsins er 3,5m x 6,8m.
Sameignileg salernisaðstaða er á svæðinu.
Malbikað er framan við húsið.
Útveggir: Allar veggja samstæður eru gerðar úr forgerðum steinullareiningum (harðpressuð steinull sem klædd er með 0,6mm þykku aluzinki.) Einingarnar eru 100 mm á þykkt
Þak: Þak einingar eru gerðar úr 150 mm þykkum steinullareiningum.
Gólf: Gólf er steypt, járnbent og vélslípað með niðurfalli.
Raflagnir: Raflagnir eru utanáliggjandi á veggjum og eru sýnilegar, 3ja fasa rafmagn í rafmagnstöflu í hverjum skúr
Vatnslagnir: Vaskur með heitu og köldu vatni, ofn til upphitunar innst í skúrnum.
Snyrting: Snyrting er staðsett í C húsi, matshluta 03 og er hún í sameign allra mhl (01,02,03,04 og 05.)
Bílastæði: Bílastæði á lóð eru 58 stk, þar af 5 fyrir hreyfihamlaða.
Nánari upplýsingar veitir:Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.