Hús fasteignasala og Ragna Valdís Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu eignina Grafhólar 3, 800 Selfoss. Snyrtilegt miðju raðhús með bílskúr.
Þar sem stutt er í leikskóla og grunnskóla.
Um er að ræða 190,3 fm timbur raðhús þar af er bílskúr 35,2 fm.
Innra skipulag eignar: Forstofa, stofa, eldhús, fjögur svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi. Komið er inn í forstofu sem er með flísum á gólfi og stórum fataskáp, inn af forstofu er svefnherbergi með parketi á gólfi, góðum fataskáp og stórum glugga. Eldhús og stofa er í opnu alrými þar sem útgengt er út á pall. Eldhús er með flísum á gólfi og góðri innréttingu. Stofa er björt og mjög rúmgóð. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Á gangi eru þrjú rúmgóð herbergi.
Nánari lýsing:
Forstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús: Er rúmgott með hvítri HTH eldhúsinnréttingu með góðu borðplássi, flísar á gólfi. Innbyggður ofn, helluborð og háfur frá AEG.
Stofa: Er með parketi á gólfi, björt og rúmgóð, útgengt út á pall.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðkari, walk in sturtu og handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Er með parketi á gólfi, mjög rúmgott með fataherbergi.
Svefnherbergi #1: Er með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherberg #2: Er með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi #3: Er notað sem sjónvarpsherbergi í dag, þar er útgengt út á pall og parket á gólfi.
Þvottahús: Er rúmgott með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsi er innangengt inní bílskúr,
Pallur: Er með útiflísum að hluta til, lýsing í skjólveggjum og heitur pottur.
Granít er í öllum gluggakistum.
Innréttingar frá HTH.
Næturlýsing á gangi.
Geymsluloft yfir þvottahúsi.
Steypt stétt fyrir framan hús.
Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8466581, tölvupóstur ragna@husfasteign.is.
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.