Fasteignaleitin
Skráð 29. okt. 2026

Eyrargata 31

EinbýlishúsSuðurland/Eyrarbakki-820
258.9 m2
7 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
64.050.000 kr.
Brunabótamat
88.960.000 kr.
Mynd af Guðrún Hulda Ólafsdóttir
Guðrún Hulda Ólafsdóttir
Lögmaður og löggiltur fasteigna- fyrirtækja og skipasali
Byggt 1913
Geymsla 48.3m2
Garður
Svalir
Pallur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2200073
Landnúmer
165932
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
endurnýjað
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ekki vitað
Þak
ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
tvennar
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar

Eyrargata 31, Eyrarbakki – Hvoll
Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali, kynnir:

Einstakt og sögufrægt einbýlishús á þremur hæðum, kjallara, aðalhæð og risi, á stórri sjávarlóð við Eyrargötu 31 á Eyrarbakka. Húsið ber nafnið Hvoll og stendur á sjávarlóð sem nær að sjóvarnargarði og er leigð til erfðafestu. 
Hvoll er eitt af fyrstu steinsteyptu húsunum á svæðinu og er húsið klætt að utan með standandi timburklæðningu. Húsið á sér áhugaverða sögu og hefur á árum áður meðal annars verið sýslumannsbústaður og prestsbústaður.

Eignin hefur sterkt yfirbragð þar sem reynt hefur verið að halda í sem mest upprunalegt þó með nútímaþægindum líka.  Húsið er rúmgott og velskipulagt og einkennist af upprunalegum gólfum, burðarbitum í lofti - aukinni lofthæð og fallegum tengslum við sögu hússins.   Frá efri hæð er sjávarútsýni til suðurs og fjallasýn til norðurs.

Lóð og útisvæði:
Lóðin er 2.290 fm erfðafestulóð sem samkvæmt skilgreiningu þess orðs er eilíf og óuppsegjanleg og nær að sjóvarnargarði.
Við húsið er ca 75 fm pallur með skjólveggjum, sem skapar gott og skjólgott útisvæði en hægt er að ganga út á pall úr sólstofu.  Tveir hólar eru á lóð annar var lengi nýttur sem kartöfllugeymsla þegar efri garðurinn var nýttur sem kartöflugarður og fyrir aðra ræktun.

Árið 1986 var ráðist í umfangsmiklar breytingar á húsinu. Þá var meðal annars byggður kvistur til austurs, sólstofu bætt við húsið og byggt um 30 fm svefnherbergi á efri hæð þar sem útgengt er út á suðursvalir með sjávarsýn. 

pprunaleg gólf eru að stórum hluta varðveitt á fyrstu og annarri hæð. Náttúruflísar eru í forstofu og sólstofu. Gólfhiti er í forstofu og baðherbergi á neðri hæð.

Aðalhæð
Forstofa/hol: Náttúruflísar á gólfi og gólfhiti.
Stofa, borðstofa og eldhús: Bjart og rúmgott alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast vel saman. Eldhúsið var endurnýjað árið 2004 og opnað inn í stofu. Þar er ALNO-innrétting í vanillulit með gegnheilli hnotuborðplötu. Upprunaleg gólf eru að mestu varðveitt.  Til er framhlið á fyrir innbyggða uppþvottavél.  Eldri bakarofn frá AEG er í eldhúsi en nokkurra ára spanhelluborð er frá Bosch auk þess sem gashelluborð er til í eldunareyjuna.  Háfur.
Úr eldhúsi liggur stigi upp á efri hæð. Aðgangur að kjallara frá rýminu í gegnum hlera á gólfi auk þess sem aðgengi er utanfrá.
Baðherbergi: Sturta, upphengt salerni, vaskinnrétting og spegill. Gólfhiti er á baðherberginu og tengi fyrir þvottavél.
Sólstofa: Gengið er niður tvær tröppur frá aðalhæð í sólstofu.  Náttúruflísar eru á gólfi.  Útgengt út á pall úr sólstofu.

Efri hæð
Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, miðrými (sjónvarpsrými/setustofa) og baðherbergi.  Tvennar svalir til suðurs og norðurs.
Svefnherbergi I :– hjónaherbergi:
Mjög rúmgott, um 30 fm, og hluti viðbyggingar frá 1986. Sérsmiðaðir fataskápar endilöngu herberginu. Gólffjalir eru frá 1986. Úr herberginu er gengið út á svalir til suðurs með fallegu sjávarútsýni.
Svefnherbergi II:
Rúmgott herbergi norðan megin með fataskápum og upprunalegum gólfum. Útgengt er á svalir til norðurs með götu- og fjallasýn.
Svefnherbergi III:
Barnaherbergi sem snýr til norðurs. Upprunalegar gólffjalir.  Lítill skápur undir súð.
Baðherbergi:
Baðkar, vaskinnrétting og salerni.  Þakgluggi.

Vegna súðar er raunverulegt gólfflatarmál efri hæðar mun fleiri  fermetrar en skráðir en skráðir.

Kjallari:
Kjallari er undir öllu eldra húsi eignarinnar. Lofthæð er um 1,90 m.  Ýmsar vangaveltur hafa verið með að dýpkan hann þar sem undirlagið er sandur og breyta aðkomu að honum utanfrá.  Í dag er hann upprunalegur.

Eign sem býður upp á mikla möguleika á einstakri lóð.  Geymsla er skráð með húsinu en hún hefur ekki verið til staðar sl 50 ár.  

Viðhald eignar:
1986:  Kvistur til austurs, sólstofa og stórt svefnherbergi við suðurhliðina byggt.  Þakgluggar á baðherbergi og í gangi settir.
1986:  Ný rafmagnstafla og rafmagnsídráttur á efri hæð.
2004:  Eldhús endurnýjað - opnað á milli stofu og elshúss.  Pallur byggður og loft upptekin.  Aðalhæðin er einangruð innanfrá líka og krossviður á bakvið gips og upparklæðning.  Ullarklæðning í loftum.
2004:  Rafmagn endurnýjað á aðalhæðinni að hluta.
2004-2008.  Gólfhiti í forstofu og baðherbergi á neðri hæð settur 
2019.  Hús málað að utan að mestu og þak.  Nýju járni bætt undir þakplötur sem voru farnar að ryðga og nýjar festingar settar að hluta þar sem þótti vanta.
2019.  Ný klæðning á suðurhlið og vatnsbretti úr blikki sett við glugga.  

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1950
48.3 m2
Fasteignanúmer
2200073
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
3.510.000 kr.

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Illugagata 52
Á einni hæð
Skoða eignina Illugagata 52
Illugagata 52
900 Vestmannaeyjar
246,4 m2
Einbýlishús
625
446 þ.kr./m2
110.000.000 kr.
Skoða eignina Heiðarbraut 39
Bílskúr
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Heiðarbraut 39
Heiðarbraut 39
300 Akranes
234 m2
Einbýlishús
725
512 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Grænlandsleið 19
3D Sýn
Bílskúr
Grænlandsleið 19
113 Reykjavík
240,4 m2
Raðhús
524
Fasteignamat 156.950.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Dalsbyggð 15
Heitur pottur
Skoða eignina Dalsbyggð 15
Dalsbyggð 15
210 Garðabær
242,2 m2
Einbýlishús
514
906 þ.kr./m2
219.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin