Fasteignaleitin
Skráð 2. júlí 2026

Strandvegur 26 1. hæð D

FjölbýlishúsSuðurland/Vestmannaeyjar-900
110.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
816.530 kr./m2
Brunabótamat
67.200.000 kr.
Fasteignanúmer
2513866
Húsgerð
Fjölbýlishús

Heimaey fasteignasala kynnir glæsilega þriggja herbergja íbúð að Strandvegi 26, jarðhæð,  900 Vestmannaeyjum
Um er að ræðar eignina Strandveg 26, 900 Vestmannaeyjar, nánar tiltekið eign merkta 01-04, fastanúmer 251-3866, með inngangi að austan frá bílaplani. Eignin selst ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindum.
 Húsið var reist árið 1947 af Ísfélaginu í Vestmannaeyjum en árið 1960 var það stækkað. Árið 2016 hófst vinna við að finna húsinu nýtt hlutverk. Vestmannaeyjabær efndi til hönnunarsamkeppni þar sem ákveðið var að umbreyta gamla atvinnuhúsnæðinu í íbúðarhús. Við endurhönnunina var hluti eldri byggingarinnar rifinn en einkennandi bogadreginn hlutin hússins var varðveittur að ósk bæjaryfirvalda sem hluti af sögu hússins. Í dag er strandvegur 26 glæsilegt fjölbýlishús með nútímalegum íbúðum. 
Um er að ræða einstaklega fallega og vandaða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi, staðsetta í hjarta Vestmannaeyja. Eignin er skráð hjá FMR sem 120,5 fm samtals, þar af er íbúðin 110,1 fm og geymsla 10,4 fm. Austan við eignina er stórt og rúmgott bílastæðaplan.
Íbúðin hefur verið nýuppgerð á afar smekklegan og vandaðan hátt þar sem ekkert hefur verið til sparað. Hún er búin nýjustu gólfhitakerfum og nútímalegum læsingum sem auka bæði þægindi og öryggi. Öll tæki í íbúðinni eru mjög lítið notuð og í frábæru ástandi. Hér er um að ræða bjarta, rúmgóða og vel skipulagða eign með vönduðum frágangi í alla staði.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Gengið er inn um sérinngang á jarðhæð. Forstofan er björt og snyrtileg með góðri aðkomu.
Herbergi: Rúmgott herbergi með litlum vaski, sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Hjónaherbergi: Gott hjónaherbergi með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi: Glæsilegt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni, vaskaskáp, speglaskáp og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Eldhús: Fallegt og vandað eldhús með dökkri innréttingu og góðu skápaplássi. Bakarofn er í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Í eldhúsinu er einnig glæsileg eyja með spanhelluborði og háfi yfir, þar sem hægt er að sitja við.
Borðstofa: Rúmgóð og björt borðstofa með gólfsíðum glugga sem gefur rýminu mikinn karakter og góða birtu.
Stofa: Stofan er í opnu og skemmtilegu rými með eldhúsi og borðstofu. Úr stofu er gengið út um rennihurð, sem tengir íbúðina fallega við útisvæðið.
Harðparket er á öllum rýmum íbúðarinnar að undanskildu baðherbergi, þar sem flísar eru á gólfi og veggjum.
Umhverfi og staðsetning:

Eignin er staðsett í miðbæ Vestmannaeyja þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í göngufæri eru meðal annars matvöruverslanir, veitingastaðir, ísbúð, Herjólfur og önnur þjónusta. Þetta er einstaklega þægileg staðsetning fyrir þá sem vilja búa miðsvæðis en samt njóta rólegs og fallegs umhverfis.
Um er að ræða afar vandaða og glæsilega eign á frábærum stað í Vestmannaeyjum sem vert er að skoða betur.

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/09/202120.900.000 kr.54.500.000 kr.110.1 m2495.004 kr.
06/09/202120.900.000 kr.54.500.000 kr.110.1 m2495.004 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimaey þjónustuver
http://heimaey.net

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Strandvegur 11
Bílastæði
Opið hús:06. júlí kl 18:00-18:30
Skoða eignina Strandvegur 11
Strandvegur 11
210 Garðabær
118.1 m2
Fjölbýlishús
514
931 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Miklabraut 82
Bílskúr
Skoða eignina Miklabraut 82
Miklabraut 82
105 Reykjavík
137.3 m2
Hæð
412
684 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 4
Skoða eignina Sunnusmári 4
Sunnusmári 4
201 Kópavogur
69.2 m2
Fjölbýlishús
211
952 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12B
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 12B
Hafnarbraut 12B
200 Kópavogur
94.7 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin