INGÓLFSSTRÆTI 16 – GLÆSILEG ÞAKÍBÚÐ Í HJARTA REYKJAVÍKURLIND fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson löggiltur fasteignasali kynna einstaklega fallega og sjarmerandi íbúð á tveimur hæðum við Ingólfsstræti 16 á eftirsóttum stað í hjarta miðborgarinnar. Gólfflötur eignarinnar er um 120 fermetrar og að auki eru rúmlega 26 fermetra suðursvalir/sólpallur sem mynda einstaka þakverönd.Húsið var teiknað fyrir athafnamanninn Metúsalem Jóhannsson og fjölskyldu.
Arkitekt er Guðmundur H. Þorláksson. sem vann samhliða og með Guðjóni Samúelssyni.
Guðmundur H. vann hjá Húsameistara ríkisins þar sem hann teiknaði eða kom að teikningu fjölda merkra húsa í Reykjavík.
Meðal annars Þjóðleikhúsið, Hljómskálinn, Korpúlfsstaðir, Mímisvegur 2 og Alliance húsið.Húsinu var breytt aftur í íbúðir á árunum 2002-2004 þar sem húsið var tekið í gegn og allar lagnir endurnýjaðar. Reynt hefur verið að halda í upprunlegt horf hússins í viðhaldssögu þess, m.a. þegar kemur að gluggum, handriðum, innihurðum o.s. frv. Upphaflegar innihurðir, falleg gluggasetning, rósettur og loftlistar setja mikinn svip á íbúðina. Hér gefst sjaldgæft tækifæri til að eignast glæsilegt borgarheimili þar sem upprunalegur karakter fær að njóta sín í bland við vandaðar sérsmíðaðar innréttingar og fallegt efnisval. Eignin er björt og rúmgóð, með aukinni lofthæð og einstaklega hlýlegu yfirbragði.
Smellið hér til að skoða myndband af eigninni.Neðri hæðForstofa/setustofa: Komið er inn í bjart og fallegt rými með sérsmíðuðum skápum sem falla vel að stíl eignarinnar.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með fallegu yfirbragði. Frá stofu liggur stigi upp á efri hæð eignarinnar.
Eldhús: Er einstaklega glæsilegt með sérsmíðaðri innréttingu, marmaraborðplötu og stórri Smeg gaseldavél. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttinguna.
Frá eldhúsinu er útgengt á stórar og skjólgóðar suðursvalir.
Þaksvalir: Einn helsti kostur eignarinnar eru rúmlega 26 fermetra þaksvalir til suðurs sem verða að sannkallaðri útistofu yfir sumartímann. Þar er gott næði og frábær aðstaða til að njóta sólar, útiveru og samveru með fjölskyldu og vinum – algjör lúxus í miðborg Reykjavíkur.
Baðherbergi: Klassískt og fallegt baðherbergi sem fellur vel að karakter hússins. Það er flísalagt að hluta og búið fallegum Philippe Starck vaski, baðkari og upphengdu salerni.
Efri hæðStofa/vinnustofa: Opið, bjart og rúmgott rými sem nýtist í dag sem stofa og vinnuaðstaða. Skipulagið býður upp á möguleika á að útbúa þar viðbótar svefnherbergi ef óskað er.
Svefnherbergi I: Er rúmgott og með sérsmíðuðum hillum.
Svefnherbergi II: Er falleg og með sérsmíðuðum kommóðum og hirslum.
SameignSameiginleg geymsla er á fyrstu hæð hússins og einnig er sameiginlegt þvottahús.
Helstu kostir eignarinnar· Um 120 fermetra gólfflötur á tveimur hæðum.
· Rúmlega 26 fermetra suðursvalir/sólpallur – einstakur kostur í miðborg Reykjavíkur.
· Tvö rúmgóð svefnherbergi og möguleiki á að bæta við svefnherbergi.
· Parket á öðrum rýmum íbúðarinnar en baðherbergi.
· Fallegur upprunalegur arkitektúr og mikill karakter.
· Björt og rúmgóð alrými með aukinni lofthæð.
· Sérsmíðaðar bókahillur, skápar, hirslur og eldhúsinnrétting.
· Vandað eldhús með marmaraborðplötu og stórri Smeg gaseldavél.
· Klassískt baðherbergi sem fellur einstaklega vel að stíl eignarinnar.
· Sveigjanlegt skipulag sem hentar jafnt fjölskyldum sem þeim sem leita að glæsilegu borgarheimili.
· Húsið hefur nýlega verið múrviðgert og málað.
· Frábær staðsetning í hjarta miðborgarinnar.
StaðsetningStaðsetningin við Ingólfsstræti er eins miðsvæðis og hugsast getur. Hér er búið í örfárra mínútna göngufæri frá veitingastöðum, kaffihúsum, verslunum, leikhúsum og listasöfnum ásamt Hörpu, Tjörninni og allri þeirri fjölbreyttu menningu og þjónustu sem miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða.
Einstök eign þar sem staðsetning, karakter og rúmgóðar suðursvalir fara saman – sannkallað borgarheimili í hjarta Reykjavíkur.
Eignin er skráð 91,5fm skv HMS en gólfflötur er talsvert meiri eða um 120fm ath að þetta hefur ekki verið mælt nákvæmlega upp. Þessir fm nýtast vel og er hluti af sérmíðuðum innréttingum íbúðar á þessum óskráðu fm.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir
Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-5115 / Gudmundur@fastlind.is -Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900,