Fasteignaleitin
Skráð 19. júní 2026

Lundur 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
229.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
189.900.000 kr.
Fermetraverð
827.451 kr./m2
Brunabótamat
144.220.000 kr.
Byggt 2015
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
23501841
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 
 
Afar glæsileg sex herbergja íbúð í nýlegu (2015) lyftuhúsi við Lund í Kópavogi.  
Íbúðin er á tveimur hæðum og er veglega búin, eigninni fylgja tvö sérmerkt bílastæði í lokuðum bílkajallara undir húsinu. Einnig er sérinngangur í íbúðina af vesturhlið hússins.

Eignin er samtals skráð 229,5 fm. Þar af efri hæð 131,5 fm, neðri hæð 90,3 fm og sérgeymsla 7,7 fm.  
 
Bókið skoðun hjá Ingibjörgu Þórðardóttur löggiltum fasteignasala í síma 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is eða Ólafi M. Ólafssyni í síma 865-8515 / olafur@hibyli.is.


Lýsing efri hæðar: 
Forstofa
: Flísar á gólfi, fataskápar.
Eldhús: Stórt eldhús er opið við stofur, hvít og eikarinnrétting, gott skápa og vinnupláss, eldunareyja sem unnt er að sitja við, gluggi.
Stofur: Samliggjandi bjartar og rúmgóðar stofur, þ.e. setustofa og borðstofa, fallegt parket á gólfi, gólfsíðir gluggar, innfeld lýsing í loftum, útgengi á yfirbyggðar svalir sem snúa í vestur með útsýni yfir sjóinn / Nauthólsvík. 
Svefnherbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi, parket á gólfi, fataherbergi. 
Svefnherbergi 2: Gott herbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi efri hæðar: Rúmgott baðherbergi neðri hæðar, flísar á veggjum og gólfi, baðkar með flísalagðri hlið, vegginnbyggð blöndunartæki, upphengt salerni, góð innrétting undir vaski.

Þvottahús: Innan íbúðar, flísar á gólfi, innrétting með tengi fyrir vélar í hentugri vinnuhæð, skolvaskur.

Gengið um steyptan stiga með glerhandriði niður á neðri hæð eignarinnar.
Sjónvarpshol er rúmgott með parketi á gólfi, útgengt á afgirta timburverönd þar sem er heitur pottur, veröndin snýr í vestur.
Baðherbergi neðri hæðar: Flísar á veggjum og gólfi, flísalögð sturta með glerhlið sem gengið er slétt inní, vegginnbyggð blöndunartæki í sturtunni, upphengt salerni, eikarinnrétting undir vaski.
Svefnherbergi 3: Rúmgott herbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi 4: Einnig gott herbergi, parket á gólfi, fataskápur.

Tvær sameiginlegar hjóla- og vagnageymsla með útgengi á lóð.

Lóðin er fullfrágengin með hitalögnum í gangstétt fyrir framan hús, mjög góðri aðkomu með fjölda bílastæða á malbikuðu stóru bílaplani.
Byggingaraðili hússins var Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. - www.bygg.is 


Falleg og vönduð íbúð á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað - stutt í margvíslega þjónustu. Fallegar göngu/hlaupaleiðir og útivistarsvæði í nágrenninu.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu hibyli@hibyli.is
Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Híbýli
http://www.hibyli.is

Myndir (98)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Snæland 2
Hleðslustöð
Skoða eignina Snæland 2
Snæland 2
108 Reykjavík
98 m2
Fjölbýlishús
413
877 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Lindasmári 37
Skoða eignina Lindasmári 37
Lindasmári 37
201 Kópavogur
109.2 m2
Fjölbýlishús
413
759 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Sóleyjarimi 7
112 Reykjavík
61 m2
Fjölbýlishús
211
982 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Tjarnabraut 16
260 Reykjanesbær
100.5 m2
Fjölbýlishús
413
596 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin