Fasteignaleitin
Skráð 17. ágúst 2026

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
86 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
31.600.000 kr.
Fermetraverð
367.442 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Svalir
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
101170826
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *SKEMMTILEGT ENDURNÝJAÐ EINBÝLISHÚS MEÐ SÓLRÍKUM SUÐURGARÐI* *SJÁVARÚTSÝNI* *SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR* *GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR, VEITINGASTAÐI OG GOLF*

Falleg endurnýjuð eign sem snýr í suður. Þrjú svefnherbergi, eitt baðherbergi og gestasnyrting. Eldhús og stofa í opnu rými. Sólríkur suðurgarður og bílastæði er innan lóðar. Góðar svalir á annarri hæð og útsýni til sjávar. Eignin er með loftkælingu/hitun. Eigninni fylgir einnig aðgangur að stórum sameiginlegum sundlaugargarði. Rólegt hverfi og gróið umhverfi.  

Allar upplýsingar veitir:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, sími 0034 615 112 869


Nánari lýsing:
Falleg og vel skipulögð, mikið endurnýjuð eign á góðri endalóð sem snýr í suður. Gengið er inn í stofu og eldhús í opnu rými. Eldhús hefur verið endurnýjað með fallegri hvítri, háglans innréttingu. Á neðri hæðinni er herbergi sem nýtt er sem geymsla, en hægt að breyta í svefnherbergi. Á hæðinni er einnig gestasnyrting. Garðurinn er sólríkur og bílastæði er innan lóðar. Næg bílastæði er einnig að finna við götu.

Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og gott baðherbergi með sturtu. Útgengt er úr öðru svefnherberginu á góðar svalir með útsýni til sjávar. Eignin er með loftkælingu/hitun. Eigninni fylgir einnig aðgangur að stórum sameiginlegum sundlaugargarði. 

Rólegt hverfi og gróið umhverfi. Göngufæri í fjölda veitingastaða og verslana., s.s. í verslunarkjörnunum Villamartin Plaza og La Fuente.

Hér er hægt að gera góð kaup í þessari eign á eftirsóttum stað í Villamartin.

Verð 218.000 evrur eða 31.600.000 ISK (gengi miðast við 1EUR=145ISK)

Ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Stutt í verslanir, veitingastaði og í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Örstutt á frábæra golfvelli, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas og ótal fleiri. El Limonar, einn besti alþjóðlega einkaskólinn á svæðinu er örstutt frá. Í göngufæri við minigolf og padel velli. Ca. 5 mínútna akstur niður á fallegar strendur La Zenia og Cabo Roig. Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við aðstoðum við fjármögnun fyrir allt að 75% af kaupverði eignar á góðum kjörum frá spænskum bönkum.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: endalóð, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, svalir, golf, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin, La Zenia, Blue Lagoon, El Galan,
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
101170826

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Bílastæði
Á einni hæð
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
62 m2
Raðhús
312
489 þ.kr./m2
30.300.000 kr.
Skoða eignina Leirdalur 14
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Leirdalur 14
Leirdalur 14
260 Reykjanesbær
85.2 m2
Raðhús
312
797 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Bleikjulækur 21
Á einni hæð
Skoða eignina Bleikjulækur 21
Bleikjulækur 21
800 Selfoss
78.1 m2
Raðhús
312
754 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Berjateigur 7
Skoða eignina Berjateigur 7
Berjateigur 7
250 Garður
83.2 m2
Raðhús
312
672 þ.kr./m2
55.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin