Fasteignaleitin
Skráð 30. sept. 2026

SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
200 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
90.900.000 kr.
Fermetraverð
454.500 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Svalir
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
240290926
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Já
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEGT NÝLEGT EINBÝLISHÚS* *5 SVEFNHERBERGI OG 3 BAÐHERBERGI* *SALTVATNSSUNDLAUG, ÚTSÝNI OG FRIÐSÆL STAÐSETNING* *ÞAKSVALIR OG STÆÐI Á LÓÐ* *LOKUÐ GATA MEÐ RAFMAGNSHLIÐI*

Vel hannað og glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum. Staðsett í lokuðu einbýlishúsahverfi í útjaðri San Miguel de Salinas, skemmtilegum spænskum bæ með sál og sjarma, ca. 50 mín. akstur suður af Alicante flugvelli. Örstutt á Las Colinas Golf. Í miðbæ San Miguel de Salinas er stutt að fara til að finna fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum og örskotsstund tekur einnig að renna inn í Villamartin fyrir enn frekara úrval af þjónustu. Fjölmargir góðir golfvellir á svæðinu; Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas, Vistabella, La Finca og ótal fleiri. 

Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, 0034 615 112 869


LÝSING EIGNAR: Frá forstofu er komið inn í bjarta og fallega stofu og borðstofu með gólfsíðum gluggum. Eldhús tengist bæði stofu og útisvæði vel, og þaðan er gengið út á svalir sem eru yfirbyggðar að hluta, og þaðan er hægt að dýfa sér beint í saltvatnssundlaugina. Frá svölum er gengið niður í garðinn, þar sem hægt er að njóta sólarinnar allt árið, þar sem eignin snýr í suður. 
Á aðalhæðinni eru 3 rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, og 2 baðherbergi, annað baðherbergið er inn af hjónaherbergi. 
Á neðri hæð er komið í rúmgott alrými. Á hæðinni eru 2 rúmgóð svefnherbergi með fataskápum og baðherbergi með sturtu. Á neðri hæð er einnig þvottahús.
Eigninni fylgja stórar þaksvalir með pergólu og stórfenglegu útsýni, þar sem hægt er að njóta sólarinnar frá morgni til kvölds.

Um er að ræða einstaklega vel skipulagt einbýlishús við rólega götu í lokuðu hverfi. Eignin hentar vel til búsetu allt árið, eða til að nota í fríinu og það er heldur betur nóg pláss fyrir stórfjölskylduna. 

Verð 649.000 evrur (90.900.000 ISK miðað við gengi 1Evra = 140ISK)

Öll þjónusta í næsta nágrenni og auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin í ca. 15 mín. akstursleið og ströndin í ca. 20 mín. akstursleið frá San Miguel de Salinas.

Meira um SAN MIGUEL DE SALINAS:
San Miguel de Salinas er skemmtilegur spænskur bær í stuttri akstursfjarlægð frá ströndum Mil Palmeras, Campoamor, Cabo Roig, La Zenia, Torrevieja, La Mata, Guardamar o.fl.  Bærinn er umkringdur fallegri sveit þar sem augað lítur fallega sítrus- og möndlurækt og þjóðlendugarð Sierra Escalona rétt við þröskuldinn. Hægt er að ganga og hjóla marga kílómetra meðfram síkinu sem liggur rétt við bæinn.
 
Í San Miguel de Salinas er mikið úrval af skemmtilegum veitingastöðum, bæði spænskum og alþjóðlegum (tæplega 30 í miðbænum einum, sem þýðir að árlegur tapas-viðburður er mjög vinsæll!!). Ef þú ert að leita að áfangastað til að dvelja í fríum, eða stað til að búa á allt árið um kring, þá er San Miguel de Salinas frábær kostur þar sem í bænum hefur þú alla nauðsynlega þjónustu og öll þægindi (góðir grunn- og framhaldsskólar, bankar, heilsugæslustöð sem er opin allan sólarhringinn, apótek, góð aðstaða til íþrótta, td. sundlaug, fótbolta- og frjálsíþróttavöllur, tennisvellir, padelvellir, körfuboltavellir, petanca ofl. Í bænum er líka skemmtileg  blanda af spænskum og alþjóðlegum nágrönnum.
 
Stemmingin er þægileg og afslappandi og verð á börum og veitingastöðum hafa tilhneigingu til að vera lægri en á ströndinni, td. glas af góðu rauðvíni beint úr tunnunni. Vikulegur miðvikudagsmarkaður er frábært tækifæri til að birgja sig upp af staðbundnum ferskum ávöxtum og grænmeti, skinkum, ostum, ólífum, fötum og skóm o.s.frv., áður en þú færð þér drykk og tapas í einni af vinalegu tavernunum í bænum!
 
Það er leigubílaþjónusta á staðnum og almenningsvagnar ganga nokkrum sinnum á dag til Torrevieja, Orihuela og Murcia. Alicante og Murcia flugvöllur eru báðir í um 40-50 mínútna akstursfjarlægð. Netfyrirtækið á staðnum býður upp á áreiðanlegar, háhraða (ljósleiðara) nettengingar, sem auðveldar fólki að vinna í fjarvinnu. San Miguel er staður þar sem þú nýtur hefðbundins spænsks lífstíls og menningar, án þess að fórna þægindum af fyrsta flokks aðstöðu og umhverfi. San Miguel de Salinas er sérlega vinalegur bær sem við vitum að þú munt elska!

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 12%.

Eiginleikar: sér garður, kjallari, einkasundlaug, air con, bílastæði, lokuð gata, útsýni, þaksvalir, 
Svæði: Costa Blanca, San Miguel de Salinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
240290926

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hulduholt 7
Bílskúr
Skoða eignina Hulduholt 7
Hulduholt 7
603 Akureyri
180.4 m2
Raðhús
413
Fasteignamat 89.300.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Svarfaðarbraut 22
Bílskúr
Svarfaðarbraut 22
620 Dalvík
192.9 m2
Einbýlishús
625
485 þ.kr./m2
93.600.000 kr.
Skoða eignina Lækjarberg 34
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Lækjarberg 34
Lækjarberg 34
221 Hafnarfjörður
194.6 m2
Einbýlishús
514
Fasteignamat 147.800.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Norðurtún 17
3D Sýn
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Norðurtún 17
Norðurtún 17
225 Garðabær
192.6 m2
Einbýlishús
514
882 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin