Margrét Rós lgf. og Aðalsteinn lgf. hjá fasteignasölunni TORG kynna í
sölu afar fallegt einbýlishús á einni hæð með stúdíóíbúð og stórbrotnu útsýni yfir Hvítá, Heklu og fjallahringinn allt í kring við Bæjarholt 1 í Laugarási, Bláskógabyggð. Um er að ræða einbýlishús byggt árið 2011 þar sem rík áhersla er lögð á vistvæna hönnun, björt og opin rými með sterka tengingu við náttúruna. Gólfsíðir gluggar, aukin lofthæð og fallegt alrými gera það að verkum að útsýnið yfir Hvítá og fjöllin nýtur sín til fulls. Í aðalíbúð eru tvær stofur, opið eldhús með eyju, borðstofa, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, annað með þvottaaðstöðu og forstofa. Við forstofu er þriðja baðherbergið sem tengir aðalíbúð við fallega stúdíóíbúð með sérinngangi. Húsið er einstaklega bjart með gólfsíðum gluggum, kamínu í stofu og tveimur rúmgóðum sólpöllum, þar af einum með heitum potti. Húsið er klætt með standandi síberíulerki, tvöföldum dúk á þaki og tvöföldu torfþaki. Gólfhiti er í öllum rýmum með stýringu.
Sjón er sögu ríkari! Nánari upplýsingar veita Margrét Rós Lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is og Aðalsteinn Lgf. í s. 773-3532 eða adalsteinn@fstorg.isBirt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 202,9 m² og eru allir fermetrar innan íbúðar. Rými skráð sem 40 m² vinnustofa á teikningu hefur verið innréttuð sem stúdíóíbúð.Staðsetning:Eignin er staðsett í Laugarási í Bláskógabyggð, fallegu og vaxandi samfélagi við bakka Hvítár þar sem náttúra og þjónusta fara vel saman. Á svæðinu er m.a. hið nýja
Laugarás Lagoon baðlón með veitingastaðnum
Ylju, auk hins vinsæla
Slakka húsdýragarðs. Í nágrenninu eru einnig sögufrægir staðir á borð við
Skálholt og fjölmörg
útivistar- og
veiðisvæði við
Hvítá og
Brúará. Svæðið býður upp á einstakt náttúruumhverfi og kyrrð í aðeins stuttri akstursfjarlægð frá helstu perlum Suðurlands.
Lýsing eignarGengið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. Þaðan er komið inn í bjart og rúmgott alrými sem rúmar eldhús, borðstofu og stofu. Eldhús er opið með L-laga innréttingu og eldhúseyju ásamt spanhelluborði og góðu vinnuplássi. Borðstofa er í opnu alrými með gólfsíðum gluggum á tvo vegu og útgengi um rennihurð á skjólgóða timburverönd til suðurs. Stofa og setustofa eru samliggjandi á tveimur pöllum með fallegri kamínu sem skilur rýmin að. Setustofan er niðurtekin með aukinni lofthæð og stórum gluggum sem veita stórbrotið útsýni. Frá alrými liggur bjartur gangur með panorama gluggum að svefnherbergjum og baðherbergjum. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru með gluggum til suðurs. Hjónaherbergi er innst á ganginum með panorama glugga til norðurs sem veitir einstakt útsýni yfir Langjökul og fjallahringinn. Útgengi er á verönd til suðurs. Baðherbergi er rúmgott með sturtu, upphengdu salerni, baðinnréttingu og infra-rauðum saunaklefa fyrir tvo. Þvottaherbergi er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, sturtu, salerni og útgengi á verönd. Við forstofu er þriðja baðherbergið sem tengir aðalíbúð við stúdíóíbúð með sérinngangi. Stúdíóíbúðin er með sérinngangi um rennihurð að framanverðu húsi og einnig útgengi á timburverönd til suðurs. Í rýminu er eldhúsinnrétting með vaski og uppþvottavél, auk tveggja eyja sem mynda gott vinnupláss. Inn af rýminu er 6,1 m² flísalögð geymsla.
Nánari skipting og lýsing á eignarhlutum:Forstofa: Björt með fatahengi og flísum á gólfi.
Baðherbergi: Inn af forstofu með veggskáp með skúffum, hvítri borðplötu og fallegum vaski ásamt blöndunartæki. Spegill og ljós á vegg. Flísalagður sturtuklefi. upphengt salerni. Flísar á gólfi og veggjum við votrými.
Alrými: Rúmgott og bjart alrými í miðju hússins sem rúmar auðveldlega eldhús, borðstofu og stofu.
Eldhús: Opið með L-laga innréttingu auk eldhúseyju. Ágæt eldunartæki ásamt spanhelluborði.
Borðstofa: Í opnu alrými með stórum gólfsíðum gluggum á tvo vegu sem veita glæsilegt útsýni. Útgengi um rennihurð úr borðstofu á timburverönd til suðurs.
Verönd (suður): Skjólgóð timburverönd sem hentar vel undir grillaðstöðu og garðhúsgögn. Klæðning á verönd er lerki.
Stofa: Í alrými ásamt borðstofu. Stofan er samliggjandi setustofu á tveimur pöllum, aðskilin með lágum vegg með kamínu og tröppum sem liggja niður í setustofu.
Setustofa: Er rúmgóð með aukinni lofthæð og stórum gluggum á tvo vegu sem veita stórbrotið útsýni.
Gangur: Langur bjartur gangur með panorama gluggum alla leið og útgengi á verönd til norðurs.
Verönd (norður): Rúmgóð lerkiklædd timburverönd með heitum nuddpotti.
Þvottaherbergi: Ásamt aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara er einnig sturtuklefi og upphengt salerni ásamt ágætri baðinnréttingu með skápum. Útgengi á verönd að sunnanverðu.
Svefnherbergi I: Rúmgott með glugga til suðurs.
Svefnherbergi ll: Rúmgott með glugga til suðurs.
Baðherbergi: Rúmgott og bjart baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og skolvaski auk frístandandi Infrarauðum saunaklefa fyrir tvo. Baðinnrétting með góðu skápaplássi, vaski, stórum spegli og innbyggðri lýsingu.
Svefnherbergi lll (hjón): Er rúmgott með lágum panorama glugga sem veitir einstakt útsýni frá hjónarúmi til norðurs yfir Langjökul og fjallahringinn í kring. Útgengi á verönd að sunnanverðu.
Geymsla: 6.1 m
2 Innaf vinnustofu með flísum á gólfi..
Séríbúð: Með sérinngang um rennihurð að framanverðu ásamt útgengi um svalarhurð á timburverönd til suðurs. Ágæt innrétting með vaski, uppþvottavél og gert ráð fyrir sambyggðri þvottavél og þurrkara. Tvær frístandandi eyjur mynda gott vinnupláss. Bílaplan: Hellulagt að hluta og gert er ráð fyrir snjóbræðslulögn í heitavatnskerfi hússins. Búið er að setja upp hleðslustöð fyrir bíl.
Lóðin: Lóðin er leigulóð, 1.650 m
2 að stærð. Lóðin stendur hátt og er með fallegt útsýni yfir Hvítá og fjallahringinn til austurs og norðurs. Tvær verandir eru við húsið bæði að norðan- og sunnanverðu. Veröndin að sunnanverðu er að hluta yfirbyggð. Hellulögð stétt er fyrir framan húsið að hluta til.
Gólfefni: Parket er á flestum rýmum utan votrýma en þar eru flísar. Í stúdíóíbúð (vinnustofu) eru flísar.
Um ytra birði á húsi: Húsið er klætt að utan með standandi lerki og er þakið einhalla timburþak með tvöföldum dúk og torfþökum. Timburverönd umlykur húsið að sunnanverðu og að norðan til með heitum potti. Gluggar eru úr ál/tré. Rennuniðurföll eru innfelld í klæðningu.
ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉRNánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.
856-5858 /
margret@fstorg.isAðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.
773-3532 /
adalsteinn@fstorg.isKÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉRUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.