Fasteignaleitin
Skráð 19. júlí 2025

Bringur 25

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
247.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
165.000.000 kr.
Fermetraverð
665.860 kr./m2
Fasteignamat
72.950.000 kr.
VB
Viðar Böðvarsson
Lögg fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2519110
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
0
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging

Miklaborg kynnir: Stórglæsilegt arkitektateiknað heilsárshús á mjög fallegu og rólegu svæði í nánd við Reykholt i Bláskógabyggð. Arkitekt hússins er Hulda Jóns og er öll hönnun hússins einstaklega vönduð og hvergi til sparað í efnisvali. Húsið er skráð á byggingarstigi B2 en er mun nær því að teljast tilbúið til innréttinga. Gólfhitalagnir eru tengdar, rafmagn er tengt og gólfefni fylgir með. Klæðningar eru á veggjum. Hellulögð verönd er við húsið. Húsið er skráð 210,6 fm og geymsla 37,2 fm., samtals 247,8 fm. . Lóðin er tæplega 1 hektara eignarland. Nánari upplýsingar gefur Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is, s.694-1401

Nánari lýsing: Húsið er skráð 210,6 fm auk geymsluhúss se, er skráð 37,2 fm. Þar er skv. teikningu gert ráð fyrir þvottaherbergi/baðherbergi auk geymslu. Eignin er samtals skráð 247,8 fm. Um er að ræða frístundahús á einni hæð úr krosslímdum timbureiningum. Húsið stendur á staðsteyptum grunni. þak er tvihalla þak úr viðurkenndum krosslímdum timbureiningum. Skv. teikningum er gert ráð fyrir þremur svefnherbergjum í húsinu, stofu og tveimur baðherbergjum auk eldhúss og gangs. Stofa er mjög rúmgóð og skiptist í setustofu og borðstofu. Stofurýmið er opið í eldhús þar sem gert er ráð fyrir eyju. Gert er ráð fyrir verönd við húsið og heitum potti.

Um er að ræða sérlega glæsilegt hús. Vandað er til verka við hönnun og byggingu hússins. Búið er að helluleggja lóðina.

Staðsetningin er í einstakri náttúruparadís og stendur húsið sér á tæplega 10.000 fm. ( 1 ha.) eignarlóð. Fjarstýrt hlið er inn á svæðið.

Stutt er í Reykholt og á Flúðir, þannig að veitingastaðir, sundlaug, golfvöllur og verslanir eru innan seilingar.

Leiðarlýsing:

Bringur eru nálægt Torfhús Retreat.  Ekinn er Einholtsvegur (358) í átt að Torfhús Retreat og gott að setja þá staðsetningu inn í leiðsögutæki. Beygt er til hægri af Einholtsvegi þar sem er skilti sem á stendur Bringur. (Torfhús eru vinstra megin við Einholtsveg).  

Nákvæm staðsetning er hér: https://maps.app.goo.gl/4kfo9db5HJwDoBzC7

Um 10 mín. Akstur er frá Flúðum og Reykholti í Biskupstungum. Þekktir staðir í nágrenninu auk Torfhúsa er tjaldstæði við fossinn Faxa, Drumboddsstaðir River rafting og hestaleiga í Einholti.

Loftmynd af svæðinu er hér: 

https://hms.is/fasteignaskra/232790/1206955/2519110Vinsamlegast hafið samband til að nálgast teikningar og byggingarlýsingu:

Nánari upplýsingar gefur Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is, s.694-1401

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (57)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Barðastaðir 41
Bílskúr
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Barðastaðir 41
Barðastaðir 41
112 Reykjavík
225.6 m2
Raðhús
614
664 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Klausturhólar C gata 17
3D Sýn
Klausturhólar C gata 17
805 Selfoss
91 m2
Sumarhús
513
603 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Friggjarbrunnur 35
3D Sýn
Bílskúr
Friggjarbrunnur 35
113 Reykjavík
233.3 m2
Parhús
623
600 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Lyngmói 16
Bílskúr
Skoða eignina Lyngmói 16
Lyngmói 16
260 Reykjanesbær
255.2 m2
Einbýlishús
815
662 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin