Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu 3ja herbergja íbúð á 2.hæð í þríbýli á mjög góðum stað í 101 Reykjavík. Húsið var byggt 1938 og er allt upprunalegt í íbúðinni. Góð eign á góðum stað sem hægt er að gera mjög fallega og býður upp á mikla möguleika.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.Samkvæmt þjóðskrá er eignin skráð 76,6 fm
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.Nánari lýsing:Hol skiptir íbúðinni. Línoleum dúkur á gólfi og skápur.
Eldhús er með upprunalegri innréttingu og dúk á gólfi.
Stofa er tvöföld með rennihurð á milli og dúk á gólfi. Báðar eru rúmgóðar og önnur með innbyggðum skáp og hefur verið í notkun sem svefnherbergi.
Svefnherbergi er rúmgott með innbyggðum skáp og dúk á gólfi.
Baðherbergi er upprunalegt en ný blöndunartæki eru í handlaug, dúkur á gólfi. Flísar á vegg að hluta.
Óskráð risloft yfir íbúðinni sem býður upp á möguleika.
Geymsla í kjallara og sameiginlegt þvottarými.
Sameiginlegur bakgarður.
Þak endurnýjað í ágúst 2024.
Skipt um læsingar og hurðarhúna í útihurðum 2022.
Málað veggi og gólf í hitakompu, hjólageymslu, þvottahúsi og kjallaragangi 2021.
Skólplagnir endurnýjaðar að stamma 2020.
Rafmagnstafla endurnýjuð 2021, dregið nýtt í að ljósum, tenglum, rofum og þvottavélum. Sett ný ljós og útiljós sett við innganga að framan og aftan hús.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is