Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir kynnir til sölu – Bakkakot 2, Meðallandi, 881 Kirkjubæjarklaustri. Um er að ræða jörðina Bakkakot 2 (Bakkakot II b) í Skaftárhreppi, í eigu Ríkissjóð Íslands með landnúmer 163303 og fastanúmer 2188933. Jörðin er um 256 ha að stærð, að mestu graslendi, tún og bithagar. Ræktað land er 56,9 ha.
Mannvirki á jörðinni- Íbúðarhús: 126,3 fm, byggt 1972, með risi.
- Fjós: 126,2 fm, byggt 1970.
- Hlaða: 170,3 fm, byggð 1965, þarfnast drenunar.
- Aukahús: geymsla og reykhús.
- Fjárhús skráð: 75 fm frá 1968, orðið fyrir foktjóni og rifið.
Lóð og afnot- Jörðin er á skilgreindu landbúnaðarsvæði.
- Leiguland Bakkakots 3 (landnr. 234680, 4,1 ha) fylgir ekki með í sölunni.
- Kvöð er um aðkomu að húsum Bakkakots 1 og 3 og Sandhól í gegnum land Bakkakots 2.
Leigusamningar- Í gildi er þinglýstur beitarsamningur við eiganda Bakkakots 3 á 72 ha landi.
- Samningurinn gildir til 1. júní 2030.
- Hægt er að framlengja samningnum, og renna leigugreiðslur til eiganda Bakkakots 2.
- Þetta land er hluti af Bakkakoti 2 og fylgir með í sölunni.
Undanþágur- Hlunnindi undanskilin: námuréttur, efnistaka (sandur, möl o.fl.), vatns- og jarðhitaréttindi umfram heimilis- og búsþarfir, ásamt nauðsynlegri aðstöðu til nýtingar.
- Vegstæði undanskilin: öll vegsvæði í eigu Vegagerðarinnar, þar á meðal 15 m veghelgunarsvæði frá miðlínu þjóðvegar samkvæmt vegalögum nr. 80/2007.
- Réttindi í Meðallandsfjörum og Meðallandssandi fylgja ekki.
Möguleikar og tækifæriÞrátt fyrir að húsa- og jarðkostur krefjist umtalsverðra endurbóta, býður Bakkakot 2 upp á fjölbreytta möguleika:
- Endurbyggingu og uppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis.
- Landbúnaðarstarfsemi með mögulegum leigutekjum af beitarsamningi.
- Uppbyggingu í ferðaþjónustu fyrir réttan aðila.
Eignirnar eru seldar í núverandi ástandi.
Jörðin hefur verið í eyði síðast liðin ár og allur húsakostur þarfnast mikils viðhalds. Úttektarskýrsla landsúttektarmanna dags. 14. nóvember 2022 staðfestir að ástand sé slakt og hefur það versnað síðan.
Aðkoma að jörðinni er frá þjóðvegi 1 um Meðallandsveg 204 og niður Sandhólsveg 214. Akstursfjarlægð frá Vík er um 60 km. og 40 km. frá Kirkjubæjarklaustri.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá FSRE eða með því að senda tölvupóst á eignasala@fsre.is
Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir FSRE allan nauðsynlegan aðgang til þess.