Fasteignaleitin
Skráð 15. feb. 2025

Eddufell 6

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
56.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.500.000 kr.
Fermetraverð
996.473 kr./m2
Fasteignamat
42.750.000 kr.
Brunabótamat
34.650.000 kr.
Mynd af Lilja Hrafnberg
Lilja Hrafnberg
Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2531288
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
6
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gimli fasteignasala og Lilja Hrafnberg kynna: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 5.hæð í vönduðu nýju lyftuhúsi. Eignin sem er í heildina skráð 56,7 fm skiptist í opið rými þar sem eldhús, stofa, og borðstofa flæða saman með útgengi á skjólgóðar svalir, rúmgott hjónaherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og 3,4 fm geymslu. Vandaðar innréttingar, sérsmíðaðar frá viðurkenndum framleiðanda. Eldhústæki frá Siemens. Hvítar innihurðir frá Birgisson með svörtum hurðarhúnum. Fallegt ljóst harðparket á alrými og hjónaherbergi, baðherbergi flísalagt. Eignin er í útleigu og verður seld með leigusamningi kr. 294.600 pr/mán (leigjandi greiðir hússjóð).
Nánari upplýsingar veitir: Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, tölvupóstur lilja@gimli.is


NÁNARI LÝSING
Forstofa: Sérsmíðaður fataskápur í ljósum beige lit. Ljóst harðparket á gólfi.
Alrými; Eldhús/Stofa/Borðstofa: Íbúðin er mjög opin og björt, eldhús, stofa og borðstofa flæða vel saman í alrými með útgengi á skjólgóðar svalir. Sérsmíðuð eldhúsinnrétting frá viðurkenndum framleiðanda, UAB Koalos Medis (Litháen). Skápar í eldhúsi ná upp í loft og eru í ljósum beige lit. Efri skápar með viðaráferð. Mjúklokur á skúffum og skápahurðum. Spanhelluborð, blástursofn, uppþvottavél og innbyggður ísskápur frá Siemens. Ljóst harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi:  Rúmgott með sérsmíðuðum fataskápum í ljósum beige lit. Ljóst harðarket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalögð "walk in" sturta með glerþili. Vegghengt salerni, sérsmíðuð innrétting með handlaug og speglaskáp. Innrétting og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara. Ljósar 60x60 flísar á gólfi og sturtu. Handklæðaofn.
Geymsla: sérgeymsla á jarðhæð.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð. Djúpgámar á lóð.
Næg bílastæði eru við húsið. 

VÖNDUÐ EIGN ÞAÐ SEM RÍK ÁHERSLA HEFUR VERIÐ LÖGÐ Á FALLEGA HÖNNUN, EFNISVAL OG FRÁGANG.
STUTT Í ALLA ÞJÓNUSTU, S.S. GRUNNSKÓLA, FRAMHALDSSKÓLA, SUNDLAUG, LÍKAMSRÆKT OG VERSLANIR AF ÝMSU TAGI. SPENNANDI UPPBYGGING AÐ FARA AF STAÐ Í HVERFINU.


Eddufell 2-6 er vandað lyftuhús á 6 hæðum. Eignirnar sem eru 22 eru af ýmsum stærðum, allt frá stúdóíbúðum/vinnustofum til 4ra herbergja þakíbúða (Penthouse) með tvennum svölum.

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu
Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- . Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Þar sem um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 15
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:15-12:45
Skoða eignina Mosagata 15
Mosagata 15
210 Garðabær
93.5 m2
Fjölbýlishús
32
887 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Mávahlíð 41
Opið hús:17. mars kl 18:00-18:30
Skoða eignina Mávahlíð 41
Mávahlíð 41
105 Reykjavík
95.5 m2
Fjölbýlishús
312
836 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Klausturhólar C gata 17
3D Sýn
Klausturhólar C gata 17
805 Selfoss
91 m2
Sumarhús
513
603 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin