Skemmtilegur sumarbústaður í Kjósinni!
Heimili Fasteignasala og Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu einstaklega sjarmerandi og notalegan sumarbústað á ævintýralegum stað innarlega í Eilífsdal í Kjósarhreppi nánar tiltekið Hlíð 66. Lóðin sem er 5.645,9 fm leigulóð er vel staðsett á kyrrlátum og gróðursælum stað í afgirtu sumarhúsahverfi með öryggishliði. Öflugt sumarhúsafélag er á svæðinu og töluvert af fólki sem hefur þar fast aðsetur allt árið um kring.
*** Bókið skoðun hjá as@heimili.is eða í síma 898-2017 *** Nánari lýsing:Sumarbústaðurinn sem er 68,3 fm ásamt veglegri verönd með heitum potti var upphaflega byggður árið 1978, gler í gluggum var endurnýjað 2005 og á árunum 2008-2010 voru bitar undir húsi endurnýjaðir ásamt veröndinni við húsið, á sama tíma voru nýjar undirstöður steyptar, skipt um einangrun í veggjum og gólfi og klæðning að utan endurnýjuð. Byggt var við bústaðinn árið 2011 og þá var skipt um þakjárn í eldri hluta hans. Gengið er inn í rúmgott anddyri og þaðan inn í önnur rými. Eldhús og stofa eru í björtu og rúmgóðu alrými, eldri heimasmíðuð eldhús innrétting, baðherbergi með glugga, sturtuklefa og vaski. Tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum. Rúmgóð geymsla með út gengi út á veröndina. Til hliðar við bústaðinn stendur verkfæraskúr um 8,6 fm. Bæði hitaveita og rafmagn eru í bústaðnum ásamt ljósleiðara sem ekki er búið að draga í. Greitt er fast gjald fyrir hitaveitu mánaðarlega en skv. upplýsingum frá Kjósarveitu er hægt að setja upp mæli og greiða samkvæmt notkun. Neðar í lóðinni er stór köld geymsla sem er óskráð og án rafmagns. Við bústaðinn er rúmgóð timburverönd með heitum potti. Lóðin er afar skjólsæl með miklum trjágróðri sem umlykur bústaðinn og skapar skemmtilega stemmingu. Allir sumarhúsaeigendur á svæðinu eru meðlimir í Sumarbústaðafélaginu Valshamar. Gámasvæði með sorpflokkun er við öryggishliðið.
Hér er um að ræða yndislegan sælureit á fallegum og gróðursælum stað í aðeins um 30 mínútna akstursfjarlægð frá Mosfellsbæ. Skemmtilegt leiksvæði er innan svæðisins, og fjölbreytt aðstaða til útivistar m.a. klettaklifur í Valshamar og fallegar gönguleiðir. Gjöld:
Fasteignagjöld 2026 eru 162.000 kr.
Brunatrygging 2026 er 40.555 kr.
Lóðarleiga 2026 er 182.286 kr.
Hitaveita fast mánaðargjald óháð notkun um 20.000 kr. pr. mán (hægt að setja upp mæli)
Árgjald í Sumarhúsafélagið Valshamar er 50.000 kr.
Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali sími 898-2017 netfang as@heimili.isTil fróðleiks!
Valshamar í Eilífsdal er lítill klettastapi í vesturhlíðum Þórnýjartinds. Þar hefur verið klifrað síðan 1978 en árið 1987 litu fyrstu boltuðu leiðirnar dagsins ljós. Eru það fyrstu klifurleiðirnar á Íslandi sem voru boltaðar. Valshamar er trúlega mest nýttur allra klifursvæða landsins og þar er hægt að klifra bæði tæknilega erfiðar vel boltaðar leiðir og svo auðveldari leiðir tryggðar með hefðbundnum aðgerðum. Bergið er 15-20m hátt en nær sjaldnast lóðréttu. Og eitt sem ekki má gleyma. Sökum þess hve hamarinn er lítill liggja klifurleiðirnar mjög þétt.
Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.