Falleg sumarhúsaeign með gestahúsi, heitum potti og stórum palli í friðsælu umhverfiFallegur og einstaklega notalegur sumarbústaður á friðsælum stað í Grímsnesi þar sem náttúran fær að njóta sín. Hér er um að ræða bjarta og vel skipulagða eign með stórum palli, heitum potti og stórkostlegu útsýni yfir gróður og fjöll í kring.
- Róleg og friðsæl staðsetning
- Eignalóð
- Fallegt útsýni til fjalla og yfir einstaka náttúru
- Stór pallur sem umlykur húsið að hluta
- Heitur pottur í skjólgóðu umhverfi
- Gestahús með svefnherbergi og baðherbergi
Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Andrea Ósk Harradóttir astmf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar skv HMS. er 86,70m2.
Skipting eignar:Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Í aukahúsi við aðalhúsið er eitt svefnherbergi og baðherbergi.
Nánari lýsing:ForstofaFlísalögð forstofa með góðu plássi.
StofaBjört og notaleg stofa með mikilli lofthæð og stórum gluggum sem hleypa inn mikilli náttúrulegri birtu. Fallegt útsýni yfir gróið umhverfi og til fjalla.
BorðstofaBorðstofa er í opnu alrými með góðu plássi fyrir matborð og samveru fjölskyldu og vina.
EldhúsEldhús er opið inn í alrýmið með góðri vinnuaðstöðu og skápaplássi. Flísar á gólfi.
HjónaherbergiRúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi IINotalegt svefnherbergi með parketi á gólfi.
BaðherbergiFlísalagt baðherbergi með sturtu, salerni og handlaug.
GestahúsSérstakt gestahús á lóðinni sem inniheldur eitt svefnherbergi og baðherbergi. Tilvalið fyrir gesti eða aukið svefnpláss fyrir fjölskyldu og vini.
PallurStór timburpallur umlykur húsið að hluta og býður upp á góða aðstöðu til útiveru.Heitur pottur á skjólgóðum palli þar sem hægt er að njóta kyrrðarinnar og fallegs útsýnis yfir náttúruna.
Lóð:Falleg og gróin lóð í friðsælu umhverfi. Frá eigninni er víðsýnt yfir náttúruna og til fjalla sem setur einstakan svip á staðinn.
Árgjaldið er nú kr. 150 þús á ári innheimt á 5 gjalddögum. Tröllahrauni 10 er skuldlaust og hefur greitt alla gjalddaga þessa árs. Árgjald er ákveðið á aðalfundi hvert ár en hann er venjulega haldinn í september. Árgjald er til að standa straum af framkvæmdum á svæðinu, viðhaldi vega og flóttaleiða/gönguleiða, rekstri og viðhaldi aðgangshliðs, snjómokstri o.þ.h. Félagið safnar venjulega fyrir framkvæmdum áður en ráðist er í þær. Nú er verið að safna fyrir uppbyggingu og varanlegu slitlagi á götum er liggja út frá Bústjórabraut (stofnbraut svæðisins).
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.