Hraunhamar kynnir: Glæsilega fjögurra herbergja endaíbúð á þriðju hæð(efsta hæð) með stæði í bílageymslu í nýlegu lyftuhúsi á frábærum stað við Gæfutjörn 4 í Úlfarsárdal. Íbúð 310 er 108,4 fm, fjögurra herbergja með rúmgóðum suður svölum. Sér geymsla í sameign og stæði í bílageymslu.Íbúðin er laus fljótlega
Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, stofa, borðstofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, svalir, geymsla og sérbílastæði í bílastæðahúsi.
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskápum.
Opið rými, þar sem eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi.
Eldhús með smekklegri innréttingu frá Parka og vönduðum eldunartækjum.
Útgengt er frá
stofu út á rúmgóðar
svalir.Þrjú
svefnherbergi með fataskápum.
Flísalagt
baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.
Þvottaaðstaða er inn á baðherbergi.
Sér
geymsla með mikilli lofthæð í sameign.
Sameiginleg
hjólageymsla-og vagnageymsla. Sér
Bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni, allt klfárt fyrir hleðslustöð þar.
Þetta er falleg og vel skipulögð íbúð með vönduðum innréttingum frá Parka. Íbúðin hefur glugga á þrjá vegu og fallegt útsýni að Úlfarsfelli. Gæfutjörn 4 er hluti af klasabyggingu þar sem skemmtilegur inngarður tengir húsin saman. Í stigaganginum eru 9 íbúðir. Frábærar gönguleiðir í nánasta nágrenni og fallegt útsýni. Glæsileg eign sem vert er að skoða.Nánari upplýsingar veitir:
Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.