Fasteignaleitin
Skráð 12. des. 2023

Skyggnisbraut 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
125 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
719.200 kr./m2
Fasteignamat
86.450.000 kr.
Brunabótamat
77.460.000 kr.
Mynd af Erling Proppé
Erling Proppé
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2358940
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
06
Vatnslagnir
upprunalegt, byggt 2018
Raflagnir
upprunalegt, byggt 2018
Frárennslislagnir
upprunalegt, byggt 2018
Gluggar / Gler
upprunalegt, byggt 2018
Þak
upprunalegt, byggt 2018
Svalir
tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Erling Proppé & REMAX kynna í sölu: Bjarta, mjög rúmgóða og fallega þriggja herbergja 125,0 fm. íbúð á þriðju hæð ásamt stæði í bílgeymslu í nýlegu lyftuhúsi á góðum stað við Skyggnisbraut 14, Reykjavík. 

-//- Stór herbergi - möguleiki á að bæta við 1-2 herbergjum.
-//- Stór stofa
-//- Geymsla innan íbúðar
-//- Stæði í bílageymslu, búið að leggja að stæði fyrir hleðslustöð

*** FASTEIGNAMAT NÆSTA ÁRS 92.350.000,-
***

Allar frekari upplýsingar: Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.is

Skv. FMR er eignin skráð 125 fm með geymslu innan íbúðar. 

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í anddyri, hol, geymslu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, stofu- og borðstofu ásamt eldhúsi. Tvennar svalir. Sérsniðnar gardínur í öllum gluggum. 
Andyri er parketlagt með fataskáp.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum, útgengt út á svalir og parket á gólfum. 
Svefnherbergi er mjög rúmgott með skápum, parket á gólfum.
Eldhús er bjart og rúmgott, hvítar háglans innréttingar, bakaraofn í vinnuhæð, span helluborð, vifta og innbyggð uppþvottavél. Einnig er búið að setja upp bar í eldhúsi með vínkæli og stein á borðum.
Stofa og borðstofa er eitt stórt rúmgott rými, búið er að setja upp panel á sjónvarpsvegg með baklýsingu sem fylgir eigninni, parket á gólfum og útgengt út á svalir.  
Baðherbergi er með hvítri innréttingu, handklæðaofni, upphengdu salerni og sturtu. Innrétting og tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfum. 
Geymsla er innan íbúðar. 
Bílastæði fylgir eign í bílageymslu, búið er að leggja að stæði fyrir hleðslustöð. 
 Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Um er að ræða bjarta og vel skipulagða rúmgóða eign, staðsett í nýlegu og vinsælu hverfi í Úlfársdal.  Stutt er í leikskóla- og grunnskóla, íþróttafélagið Fram og fallega náttúru. 

Vegna mikilla umsvifa á fasteignamarkaðinum óska ég eftir öllum eignum á skrá, vönduð vinnubrögð og frítt skuldbindingarlaust verðmat ! 

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: 
Erling Proppé lgf // 690-1300 // erling@remax.is


Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/01/201949.700.000 kr.45.700.000 kr.125 m2365.600 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2018
Fasteignanúmer
2358940
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B2
Númer eignar
9
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.210.000 kr.

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grænaborg 4
Skoða eignina Grænaborg 4
Grænaborg 4
190 Vogar
137.9 m2
Fjölbýlishús
413
573 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Gvendargeisli 50
Bílastæði
Skoða eignina Gvendargeisli 50
Gvendargeisli 50
113 Reykjavík
138.3 m2
Fjölbýlishús
514
700 þ.kr./m2
96.800.000 kr.
Skoða eignina Maltakur 7
Bílastæði
Skoða eignina Maltakur 7
Maltakur 7
210 Garðabær
158 m2
Fjölbýlishús
322
873 þ.kr./m2
137.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnuhlíð 21
Skoða eignina Sunnuhlíð 21
Sunnuhlíð 21
603 Akureyri
82.2 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 44.600.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin